Ekkert „plan b“ að taka barn í fóstur Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 13. apríl 2021 15:18 Barnaverndarstofa hefur metið Freyju Haraldsdóttur, fyrrverandi varaþingmann og baráttukonu fyrir réttindum fólks með fötlun, hæfa til að taka að sér fósturbarn. Oddvar Hjartar Freyja Haraldsdóttir, baráttukona fyrir réttindum fólks með fötlun og fyrrverandi varaþingmaður, upplifir mikinn létti og gleði yfir því að Barnaverndarstofa hafi metið hana hæfa til að taka að sér fósturbarn – og það eftir sjö ára þrautagöngu í kerfinu.
Hún vonar að sem flestir dragi lærdóm af málinu og átti sig á því að við séum öll hvert öðru háð, ófatlaðir sem og fatlaðir. Málið á sér heillangan aðdraganda og hófst í júní 2014 þegar Freyja sótti um að fá að sitja námskeið fyrir fólk sem hefur áhuga á að gerast fósturforeldrar. Baráttan var löng og ströng en Freyja þurfti að þræða öll dómstig á Íslandi til að fá að sitja matsnámskeið fyrir verðandi fósturforeldra og á dögunum fékk hún umsögn frá Barnaverndarstofu um að hún sé sannarlega hæf og er hún komin á biðlista. „Það var ótrúlega ánægjulegt að fá loksins þessa umsögn frá Barnaverndarstofu í kjölfar þess að hafa setið matsnámskeiðið í fyrra. Ég upplifi mikinn létti og ótrúlega mikla gleði, auðvitað!“ Nú tekur við bið, líkt og aðrir sem eru í sömu stöðu hafa fengið að reyna á eigin skinni. „Ég vona náttúrulega að biðin verði ekki mjög löng en ég er samt bara þolinmóð. Ég held að stærsta skrefið sé komið; að vera komin á lista eins og aðrir sem sækja um að vera fósturforeldrar. Það er mjög góð tilfinning að vera á sama stað og aðrir umsækjendur og það er eitthvað sem ég hef í raun og veru ekki upplifað fyrr en nú.“ Reynslan af því að vera á valdi kerfis muni efla hana sem fósturforeldri Freyja kveðst hafa verið frekar ung þegar hún áttaði sig á því að hún vildi mjög gjarnan fá að verða foreldri. Fljótlega eftir að hún fékk notendastýrða persónulega aðstoð árið 2007 áttaði hún sig á því að draumurinn um að verða fósturforeldri væri raunhæfur en Freyja nýtur aðstoðar allan sólarhringinn. Freyja segir að hennar reynsla af því að hafa oft upplifað sig á valdi kerfisins muni hjálpa henni í foreldrahlutverkinu því fósturbörn séu líka á valdi kerfis. Þessi reynsla veiti henni betri innsýn og hjálpi til við að taka góðar ákvarðanir. „Ég hef auðvitað líka menntun og reynslu af því að vinna með börnum en það er ákveðin sannfæring sem hefur keyrt mig áfram í þessari baráttu. Þótt margir haldi að fötlun sé hindrun eða skaðleg fyrir börn þá held ég að því sé einmitt öfugt farið. Ég er sannfærð um að fötlun geti miklu frekar verið tækifæri og verkfæri til að skapa fósturbarni góðar aðstæður.“ Ekkert „plan b“ að taka barn í fóstur Freyja segir að fyrir sumum sé það ákveðið „plan b“ að taka barn í fóstur en það hafi aldrei átt við í hennar tilfelli. Það hafi alltaf verið hennar fyrsta val að veita barni stuðning sem ekki hafi möguleika á að vera hjá sinni upprunafjölskyldu. „Mig hefur alltaf langað til að verða foreldri með þessum hætti.“ „Það er líka ótrúlega mikilvægt að fólk átti sig á því að þegar tekst á við hlutverkið að verða fósturforeldri þá ertu ekki aðeins að fara inn í líf barnsins heldur líka fjölskyldu þess. Það er reyndar eitthvað sem mér finnst mjög spennandi og eftirsóknarvert. Þótt barn geti ekki alist upp hjá kynforeldrum sínum þá þýðir það ekkert alltaf að það geti ekki átt góð og innihaldsrík samskipti og samband við þá. Mér finnst það ótrúlega mikilvægt og áhugavert verkefni að geta stutt barn í gegnum þetta þótt ég viti alveg að þetta getur orðið flókið.“ Freyja ræddi málið í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2 árið 2019, áður en málið fór fyrir Landsrétt. Þar sagði hún meðal annars að fólk gerði sér ekki grein fyrir hvers hún væri megnug. Fordómarnir og dómharkan eitt það flóknasta við verkefnið Freyja segist hafa þurft að mæta miklu mótlæti í þessari þrautagöngu; mætt gagnrýni og dómhörku. Eitt það flóknasta við þessa baráttu hafi falist í að takast á við fordómafull viðhorf. „Og ekki bara hjá Barnaverndarstofu eða í kerfinu heldur í þessum athugasemdakerfum. Ég er þurft að læra, í gegnum þetta ferli, að leyfa þessu ekki að stjórna mínu lífi.“ Hún telur að greina megi rætur fordómanna í garð fólks með fötlunar í ótta. „Ég held að þessi viðhorf gagnvart fötluðu fólki; að það geti ekki verið foreldrar eða barn væri óöruggt í minni umsjá, endurspegli bæði skilningsleysi á aðstæðum og lífi fatlaðs fólks og líka bara ótta. Við verðum sjálf oft hrædd við að sjá ákveðna þjóðfélagshópa stíga inn í hlutverk þar sem þau hafa áður verið ósýnleg. En auðvitað hafa fatlaðir foreldrar alltaf verið til.“ Freyja segist vita manna best hvað hún sé fær um að gera, hvar hennar styrkleikar liggi og hvað líkami hennar geti gert. „Ég veit það líka best sjálf með hvaða hætti ég mun takast á við þetta verkefni að verða foreldri, alveg eins og ég hef tekist á við að vera í vinnu eða námi eða að gegna öðrum hlutverkum þannig að ég held að fólk þurfi líka stundum bara að staldra við og stoppa sig af í forræðishyggjunni.“ Freyja hefur líkt og áður segir í þessari grein notendastýrða persónulega aðstoð allan sólarhringinn. Það muni ekki breytast þótt barn komi inn í líf hennar. „Aðstoðarfólkið mitt mun aðstoða mig við allt það líkamlega sem foreldrahlutverkið kallar á alveg eins og aðstoðarfólk aðstoðar mig við allt það líkamlega sem öll önnur hlutverk í mínu lífi kalla á. Það er ekkert nýtt fyrir mér en kannski er það nýtt fyrir samfélaginu. Ég er mjög örugg og bara brött gagnvart því að takast á við þetta hlutverk.“ „Við erum alltaf að þiggja aðstoð“ Freyja bindur vonir við að sem flestir dragi ríkan lærdóm af málinu í heild. „Og sjái að það sé ekki samasemmerki á milli þess að vera með fötlun og að vera áhorfandi í eigin lífi og ekki þátttakandi. Ég vona mjög innilega að þetta mál minni okkur á að við erum öll hvert öðru háð. Það þurfa allir aðstoð algerlega óháð því hvort þeir eru fatlaðir eða ekki og ófatlaðir foreldrar fá mjög mikla aðstoð líka. Það eru leikskólar, dagforeldrar og frístundarúrræði og barnapössun í IKEA. Við gleymum því kannski stundum en við erum alltaf að þiggja aðstoð.“ „Ég vona að þetta mál minni okkur á að það er ótrúlega frelsandi að viðurkenna að við þurfum öll að hjálpast að og við þurfum öll einhverja aðstoð og þannig verður lífið einfaldara fyrir alla. Ég vona að það séu skilaboðin sem þetta mál kemur áleiðis.“
Börn og uppeldi Dómsmál Barnavernd Jafnréttismál Fjölskyldumál Tengdar fréttir Freyja metin hæf til að taka að sér fósturbarn Barnaverndarstofa hefur metið Freyju Haraldsdóttir, fyrrverandi varaþingmann og baráttukonu fyrir réttindum fatlaðra, hæfa til að taka að sér fósturbarn. 13. apríl 2021 00:03 Freyja „í skýjunum“ yfir dómi Hæstaréttar Í dómi Hæstaréttar var m.a. litið til þess að tilhögun mats á hæfni einstaklings til þess verða fósturforeldri væri um margt óljós. 30. október 2019 11:01 Freyja hafði betur gegn Barnaverndarstofu í Hæstarétti Dómurinn staðfesti dóm Landsréttar, sem dæmdi Freyju í vil. 30. október 2019 09:20 Foreldrum Freyju Haralds sárnar umræðan: „Fólk veit ekki hvað það er að tala um“ Freyju Haraldsdóttir þekkja flestir enda verið áberandi í þjóðfélagsumræðunni enda hefur fólk verið duglegt að lýsa skoðun sinni á henni, skoðunum hennar og hvað því finnst hún geta eða ekki geta. 4. apríl 2019 10:30 Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Fleiri fréttir Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan „Tölum svolítið bara um það sem við sjáum á samfélagsmiðlum í bekknum“ Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Sjá meira
Freyja metin hæf til að taka að sér fósturbarn Barnaverndarstofa hefur metið Freyju Haraldsdóttir, fyrrverandi varaþingmann og baráttukonu fyrir réttindum fatlaðra, hæfa til að taka að sér fósturbarn. 13. apríl 2021 00:03
Freyja „í skýjunum“ yfir dómi Hæstaréttar Í dómi Hæstaréttar var m.a. litið til þess að tilhögun mats á hæfni einstaklings til þess verða fósturforeldri væri um margt óljós. 30. október 2019 11:01
Freyja hafði betur gegn Barnaverndarstofu í Hæstarétti Dómurinn staðfesti dóm Landsréttar, sem dæmdi Freyju í vil. 30. október 2019 09:20
Foreldrum Freyju Haralds sárnar umræðan: „Fólk veit ekki hvað það er að tala um“ Freyju Haraldsdóttir þekkja flestir enda verið áberandi í þjóðfélagsumræðunni enda hefur fólk verið duglegt að lýsa skoðun sinni á henni, skoðunum hennar og hvað því finnst hún geta eða ekki geta. 4. apríl 2019 10:30