Viðskipti innlent

Margrét tekur við for­mennsku af Grétu Maríu

Atli Ísleifsson skrifar
Margrét Hólm Valsdóttir.
Margrét Hólm Valsdóttir. Stjórnarráð Íslands

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Margréti Hólm Valsdóttur, útibússtjóri Íslandsbanka á Húsavík, nýjan formann Matvælasjóðs. Margrét tekur við formennsku af Grétu Maríu Grétarsdóttur sem réð sig nýverið til starfa hjá Brimi.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að hlutverk Matvælasjóðs sé að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. 

„Margrét er útibússtjóri Íslandsbanka á Húsavík, hún er viðskipta- og iðnrekstrarfræðingur og er með diplómu í ferðamálafræði. Margrét hefur auk þess starfað sem fjármálastjóri, hótelstjóri og skrifstofustjóri og kom að rekstri búsins að Gautlöndum í Mývatnssveit um árabil.

Margrét tekur við formennsku af Grétu Maríu Grétarsdóttur sem eru færðar kærar þakkir fyrir framlag sitt til sjóðsins sem fyrsti formaður hans.

Stjórn Matvælasjóðs er þannig skipuð:

  • Margrét Hólm Valsdóttir, án tilnefningar, formaður.
  • Gunnar Þorgeirsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
  • Heiðrún Lind Marteinsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
  • Karl Frímannsson, án tilnefningar

Hér má nálgast frekari upplýsingar um Matvælasjóð, en stefnt er á að auglýsa eftir umsóknum úr sjóðnum fljótlega. Sjóðurinn hefur ríflega 600 milljónir til úthlutunar árið 2021.

Í desember 2020 hlutu 62 verkefni styrk úr sjóðnum,“ segir í tilkynningunni.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×