Samskiptagögn úr síma hins látna leiddu til handtöku mannanna Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 4. apríl 2021 19:58 Símasamskipti sem lögregla fann í síma mannsins sem lést í Kórahverfi í Kópavogi um helgina leiddu til þess að þrír Rúmenar voru handteknir vegna málsins. Tveimur þeirra hefur nú verið sleppt en sá þriðji sætir gæsluvarðhaldi. Meðal þess sem lögregla rannsakar nú er hvort einhver vitni hafi orðið að atvikinu.
Rúv greinir frá þessu þar sem haft er eftir Margeiri Sveinssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni að samskipti í síma hins látna hafi verið skoðuð sem leiddi til þess að mennirnir voru handteknir. Hann vill þó ekki gefa upp í samtali við Rúv hvort andlátið sé rannsakað sem manndráp en til rannsóknar sé hvernig maðurinn hlaut þá áverka sem hann var með. Margeir vill í samtali við Rúv ekki heldur fara nánar út í símasamskiptin en segir ljóst að mennirnr hafi eitthvað þekkst. Hinn látni, íslenskur karlmaður fæddur árið 1990, lést af sárum sínum í gær en grunur leikur á að bíl hafi verið ekið á hann. Lögreglu barst tilkynnig um málið rétt fyrir klukkan níu að morgni föstudagsins langa. Þá hafði kærasta mannsins komið að honum í sárum sínum á bílaplani fyrir utan heimili þeirra við Vindakór í Kópavogi. Málsatvik voru í fyrstu nokkuð óljós en þrír rúmenskir karlmenn voru handteknir í tengslum við máliðí gær, og tveimur sleppt í framhaldinu. Maðurinn hlaut talsverða höfuðáverka en rannsókn lögreglu miðar meðal annars að því hvernig hann hlaut áverkana. Grunur leikur á að bíl hafi verið ekið á manninn, eða að hann hafi dregist eftir bifreiðinni. Fyrir dómi í morgun sagði hinn grunaði að um hafi verið að ræða slys. Hann var úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Lögreglumál Kópavogur Mannslát í Vindakór Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira