Fimm bestu undir tvítugu: „Spilar póker og er í hundaklippiháskóla“ Sindri Sverrisson skrifar 9. mars 2021 17:01 Sunneva Einarsdóttir valdi fimm bestu leikmennina undir tvítugu. Í innslaginu má sjá hverjar það eru. Stöð 2 Sport „Það var erfiðara en að fæða barn að setja saman þennan lista,“ sagði Sunneva Einarsdóttir lauflétt í bragði í Seinni bylgjunni. Hún hafði þá lýst því yfir hvaða fimm leikmenn Olís-deildar kvenna handbolta, undir 20 ára aldri, væru bestar.
Sunneva fór á kostum þegar hún las upp listann. Hún kvaðst hafa sett sig í samband við leikmennina fimm og fengið að grennslast fyrir um þeirra helstu áhugamál utan handboltans. Sjón er sögu ríkari en innslagið má sjá hér að neðan. Klippa: Seinni bylgjan - Bestu fimm undir 20 ára Á listann komust þær Elín Klara Þorkelsdóttir úr Haukum, Harpa Valey Gylfadóttir úr ÍBV, Ásdís Ágústsdóttir úr Val, Elín Rósa Magnúsdóttir úr Val og Rakel Sara Elvarsdóttir úr KA/Þór sem var í efsta sætinu. Sunneva sagði frá áhugamálum stelpnanna en ekki fylgdi sögunni hversu nákvæmar eða réttar upplýsingar hennar væru. Svörin voru að minnsta kosti skrautleg: „Elín Klara æfir boccia þegar hún er ekki í handbolta, spilar póker og er í hundaklippiháskóla,“ sagð Sunneva. Og um efstu stelpu á listanum, Rakel Söru, sagði hún? „Hún les bækur, tekur göngutúra á sandinum og gerir sandengla.“ „Á hvaða strönd?“ spurði Þorgerður Anna Atladóttir sposk á svip en hún bjó á Akureyri á sínum tíma. Ekki stóð á svari: „Akureyrarströndinni“. Innslagið skemmtilega má sjá hér að ofan en þar nefnir Sunneva þá leikmenn sem voru næstir því að komast inn á listann.
Seinni bylgjan Olís-deild kvenna Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Györ - Víkingur | Víkingar stefna á aðra umferðina Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira