„Við erum með aðgengilegri þjónustu en áður, ódýrari og öruggari“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 22. febrúar 2021 12:45 Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Vísir/Vilhelm Heilbrigðisráðherra segir að danska rannsóknarstofan sem heilbrigðisráðuneytið samið við um greiningu leghálssýna sé meðal þeirra fremstu í heiminum. Hún vonar að hægt verði að byggja upp samskonar þekkingu hér á landi. Danska rannsóknarstofan skuldbindi sig að birta niðurstöður innan þriggja vikna frá afhendingu sýna.
Heilsugæslan tók yfir leghálskimanir frá Krabbameinsfélaginu um áramót. Fyrir flutning voru leghálssýnin greind hér á landi en við flutninginn var ákveðið að senda þau til greiningarfyrirtækis í Danmörku. Ýmsir hafa lýst yfir áhyggjum af þessum flutningi. Enn séu þúsundir sýna ógreind og kerfið sé flóknara en áður. Þá hefur Félag íslenskra kvensjúkdóma-og fæðingalækna og félag lífeindafræðinga komist að þeirri niðurstöðu að greining sýnanna sé best borgið hér á landi. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra blæs á þessa gagnrýni. „Rannsóknir leghálssýna fara fram á stofu sem er með aðferðir sem eru með því því besta sem gerist í heiminum. Með flutningi krabbameinsskoðunarinnar til heilsugæslunnar erum við komin með aðgengilegri þjónustu en áður, ódýrari og öruggari“ segir Svandís Heilbrigðisráðuneytið hefur gert þriggja ára samning við danska greiningaraðilann og er hann uppsegjanlegur með þriggja mánaða fyrirvara. „Ef til þess kemur að greiningargetan verður nægilega góð hérlendis þá kann að vera að það verði teknar nýjar ákvarðanir. Aðalatriðið er að konur séu öruggar. Samkvæmt samningi sem heilbrigðisráðuneytið gerði við rannsóknarstofuna þá skuldbindur stofan sig til að senda niðurstöðu innan þriggja vikna og þær munu birtast á vefnum Heilsuvera,“ segir Svandís. Við flutning skimanna til Heilsugæslunnar voru um 2400 sýni ógreind og send út. Ekki er komin niðurstaða frá danska greiningaraðilanum. „Þetta eru sýni sem lentu milli kerfa. Það er verið að vinna þau upp. Forstjóri Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu sagði við mig að um helmingur sýnanna væri komin í hús og ég vona að þetta verði unnið fljótt og örugglega,“ segir Svandís.
Skimun fyrir krabbameini Heilbrigðismál Tengdar fréttir Konur sem áttu sýni í pappakössunum þurfa að koma aftur í sýnatöku Í Danmörku verður ekki hægt að fullrannsaka þau tvö þúsund leghálssýni sem lágu í nokkrar vikur í pappakössum. Hluti kvennanna verður því kallaður í sýnatöku á ný. Læknir segir óskiljanlegt að Krabbameinsfélagið hafi skilið við verkefnið með þessum hætti. 27. janúar 2021 19:01 Skimunarráð útskýrir tillögu sína sem olli fjaðrafoki Skimunarráð segist verða að byggja ráð sín á bestu vísindalegu þekkingu um árangur skimana og halda áfram að minna á að gæta að því að jafnvægi sé á milli ávinnings og hugsanlegs skaða skimunar. Það sé hlutverk skimunarráðs að láta þau sjónarmið ráða. 14. janúar 2021 16:46 Tillögur skimunarráðs um fyrirkomulag skimana frá 2020 Skimunarráð var skipað af landlækni í maí 2018. Hlutverk skimunarráðs var í fyrstu að gera tillögur um framtíðarskipulag um skimun fyrir sjúkdómum og fyrirkomulag þeirra á landsvísu. 14. janúar 2021 16:00 Fá erlendan sérfræðing til að taka út skoðun leghálssýna Embætti landlæknis vinnur að því að fá aðila erlendis frá til að taka út skoðun leghálssýna hjá Krabbameinsfélaginu. Markmiðið er að ganga úr skugga um að endurskoðun og skoðun sýna sé fullnægjandi að gæðum. 8. september 2020 14:57 Starfsfólk Leitarstöðvarinnar telur sig ekki geta unnið fyrr en gögnin berast Krabbameinsfélagið hefur birt erindi þar sem félagið ítrekar ósk sína um gögn sem renna stoðum undir fullyrðingar fulltrúa SÍ. 6. september 2020 15:58 Vísbendingar um að greiningum krabbameins hafi fækkað í Covid Framkvæmdastjóri krabbameinsfélagsins segir að mörgum sem greinst hafa með krabbamein í sumar svíði að hafa ekki komist í krabbameinsleit fyrr vegna sóttvarnaaðgerða. 8. ágúst 2020 18:53 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Innlent Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Innlent Segir klútabyltinguna vera hafna Innlent Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Innlent Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Innlent Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Innlent Fleiri fréttir Batt á sig klút til heiðurs Höllu Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Katrín ávarpaði stuðningsmenn: „Ég sé ekki eftir þessu“ Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Katrín sér ekki eftir framboði sínu Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Segir klútabyltinguna vera hafna Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Halla Hrund: „Þetta ferðalag mun binda okkur saman út ævina“ Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Alls konar dýnamík geti komið inn við myndun tveggja turna Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa „Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Ráðinn slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum Skipuð í embætti fiskistofustjóra Kjörsókn utankjörfundar minni en 2020 Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Allt um æsispennandi forsetakosningar og leik ársins í fótboltanum Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Kosningarnar þær mest spennandi síðan 1980 Veðurspá slæm fyrir vikuna og bændur hvattir til að huga að búfénaði Slasaðist á buggy-bíl í Básum í Goðalandi Sjá meira
Konur sem áttu sýni í pappakössunum þurfa að koma aftur í sýnatöku Í Danmörku verður ekki hægt að fullrannsaka þau tvö þúsund leghálssýni sem lágu í nokkrar vikur í pappakössum. Hluti kvennanna verður því kallaður í sýnatöku á ný. Læknir segir óskiljanlegt að Krabbameinsfélagið hafi skilið við verkefnið með þessum hætti. 27. janúar 2021 19:01
Skimunarráð útskýrir tillögu sína sem olli fjaðrafoki Skimunarráð segist verða að byggja ráð sín á bestu vísindalegu þekkingu um árangur skimana og halda áfram að minna á að gæta að því að jafnvægi sé á milli ávinnings og hugsanlegs skaða skimunar. Það sé hlutverk skimunarráðs að láta þau sjónarmið ráða. 14. janúar 2021 16:46
Tillögur skimunarráðs um fyrirkomulag skimana frá 2020 Skimunarráð var skipað af landlækni í maí 2018. Hlutverk skimunarráðs var í fyrstu að gera tillögur um framtíðarskipulag um skimun fyrir sjúkdómum og fyrirkomulag þeirra á landsvísu. 14. janúar 2021 16:00
Fá erlendan sérfræðing til að taka út skoðun leghálssýna Embætti landlæknis vinnur að því að fá aðila erlendis frá til að taka út skoðun leghálssýna hjá Krabbameinsfélaginu. Markmiðið er að ganga úr skugga um að endurskoðun og skoðun sýna sé fullnægjandi að gæðum. 8. september 2020 14:57
Starfsfólk Leitarstöðvarinnar telur sig ekki geta unnið fyrr en gögnin berast Krabbameinsfélagið hefur birt erindi þar sem félagið ítrekar ósk sína um gögn sem renna stoðum undir fullyrðingar fulltrúa SÍ. 6. september 2020 15:58
Vísbendingar um að greiningum krabbameins hafi fækkað í Covid Framkvæmdastjóri krabbameinsfélagsins segir að mörgum sem greinst hafa með krabbamein í sumar svíði að hafa ekki komist í krabbameinsleit fyrr vegna sóttvarnaaðgerða. 8. ágúst 2020 18:53