Elín fór á kostum en enginn Aron í Meistaradeildarsigri Barcelona Anton Ingi Leifsson skrifar 17. febrúar 2021 21:14 Elín Jóna Þorsteinsdóttir með þjálfaranum Kent Ballegaard. mynd/vendsyssel Elín Jóna Þorsteinsdóttir fór á kostum í marki Vendsyssel í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld en það dugði ekki til gegn Randers. Vendsyssel tapaði 22-20.
Elín Jóna varði 21 af þeim 39 skotum sem hún fékk á sig eða var með tæplega 54% markvörslu. Stenunn Hansdóttir skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum fyrir Vendsyssel sem er á botni deildarinnar. Ágúst Elí Björgvinsson náði sér ekki á strik í marki Kolding sem tapaði með tíu marka mun, 34-24, fyrir Bjerrinbro-Silkeborg í danska boltanum. Ágúst varði þrjá bolta ef þeim þrettán sem hann fékk á sig en Kolding er í áttunda sæti deildarinnar. Aron Pálmarsson var ekki í leikmannahópi Barcelona sem hafði betur gegn Nantes í Meistaradeildinni, 39-29, eftir að hafa verið 17-14 undir í hálfleik. Börsungar þar af leiðandi með fullt hús stiga í B-riðlinum; tólf sigra í tólf leikjum. Gummersbach tapaði nokkuð óvænt, 28-29, fyrir Grosswallstadt í þýsku B-deildinni í handbolta. Gummersbach er í öðru sæti deildarinnar en Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari liðsins. Elliði Snær Viðarsson skoraði eitt mark. Sveinbjörn Pétursson og Arnar Birkir Hálfdánarson spiluðu í fimm marka sigri Aue, 25-20, á Wilhelmshavener í sömu deild. Arnar Birkir skoraði fjögur mörk en Aue er í níunda sæti deildarinnar.
Handbolti Þýski handboltinn Danski handboltinn Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira