Á puttanum um Suðurlandið en átti að vera í sóttkví Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. febrúar 2021 12:01 Frá Suðurlandsvegi en annars tengist myndin fréttinni ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm Erlendur ferðamaður sem átti að vera í sóttkví en ferðaðist austur um Suðurland á puttanum í liðinni viku var fluttur í sóttvarnarhús í Reykjavík. Honum jafnframt gert að greiða sekt vegna brots síns. Þetta var á meðal verkefna Lögreglunnar á Suðurlandi í síðustu viku sem lögregla greinir frá á heimasíðu sinni og má lesa um að neðan.
Kona féll um 2,5 metra niður á steingólf, af vinnupalli, við störf sín í uppsveitum Árnessýslu þann 12. febrúar. Hún var flutt til aðhlynningar á sjúkrahús í Reykjavík. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu og vinnueftirliti. Nokkuð var um aðstoðarbeiðnir vegna vatnselgs austan til í umdæminu í gær en miklar rigningar gerði þar eystra. Aurskriða féll við bæinn Hof í Öræfum, fór þar í gegn um áratuga gamlan skógarreit og olli skemmdum á honum og girðingum við bæinn en við fyrstu sýn ekki að sjá annað tjón. Það verður skoðað betur í björtu í dag. Á Höfn safnaðist víða upp vantselgur á götum og hafði fráveitukerfi illa við úrkomunni. Ekki er þó vitað um tjón vegna þessa. Nítján ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í liðinni viku í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi. Hraðast ók karlmaður fæddur 2002 á Eyrarbakkavegi en hraði bifreiðar hans mældist 134 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km. Sekt við broti sem þessu nemur 120 þúsundum króna og 2 punktum í ökuferilsskrá. Þrír þeirra sem kærðir voru kærðir fyrir að aka of hratt á Suðurlandsvegi við Þingborg í Flóa en þar er 70 km/klst hámarkshraði. Einn þeirra mlldist á 122 km/klst hraða og situr uppi með 110 þúsund króna sekt og 3 punkta í ökuferilsskrá. Tveir ökumenn eru grunaðir um að hafa ekið bifreiðum sínum undir áhrifum áfengis og eða fíkniefna. Annar þeirra var sviptur ökurétti til bráðabirgða en hann á fyrir sambærileg ólokin mál í vinnslu. Ökumaður flutningabíls var kærður fyrir að flytja of þungan farm um Suðurlandsveg við Hellu og má hann búast við sekt vegna brots síns. Mikilvægt er að fylgjast með breytingum á gildandi þungatakmörkunum á vegum nú þegar miklar sveiflur eru úr frosti og í hita eða öfugt og líkur á tjóni á vegum því miklar. 19 stór ökutæki voru tekin til vegaskoðunar. 2 eftirvagnar vörubifreiða reyndust ekki uppfylla skilyrði hvað hjóla og ljósabúnað varðar og voru boðaðir á skoðunarstofu til skoðunar. Önnur ökutæki reyndust í lagi. Ökumaður lítillar fólksbifreiðar var stöðvaður við akstur bifreiðar sinnar á Selfossi þann 10. febrúar. Munstur á 3 af 4 hjólbörðum bifreiðar hans var slitið upp og við blasti sléttur slitflötur sem á betur heima á formula ökutæki á þurrum sumardegi en í hálku að vetri til á Selfossi. 8 ökumenn voru í liðinni viku kærðir fyrir að nota farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur bifreiða sinna. 40 þúsund króna sekt er við slíku broti. Skráningarnúmer voru fjarlægð af 4 ökutækjum sem reyndust ótryggð í umferðinni Höfð voru afskipti af 6 börnum, öllum fæddum 2007, við búðarhnupl í Krónunni á Selfossi um miðjan dag í gær, 14. febrúar. Börnin færð á lögreglustöð og barnavernd, ásamt foreldrum þeirra allra boðuð á stöð þar sem greitt var úr málunum og fóru börnin síðan frjáls ferða sinna í fylgd foreldra.. Andvirði þýfisins nemur tugum þúsunda. Að rannsókn lokinni verður málið sent viðkomandi barnavernd til frekari vinnslu.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira