Fylgdarlið Johns Snorra á heimleið Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 14. febrúar 2021 17:28 John Snorri ásamt Sadpara-feðgunum. Fylgdar- og aðstoðarmenn Johns Snorra Sigurjónssonar, Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr eru á heimleið. Fjallagarpanna hefur verið saknað í níu daga á fjallinu K2 í Pakistan og hefur víðtæk leit farið fram að göngumönnunum en engin ummerki um þá fundist.
Pakistanski herinn mun halda til í grunnbúðum K2 áfram en fylgdarlið göngumannanna er nú á leið heim. Þetta segir Vanessa O‘Brien, sem er í fylgdarliðinu, á Twitter. Yfirgripsmikil leit hefur farið fram að göngumönnunum í fjallinu, gervihnattamyndir verið skoðaðar, fjallið gengið að hluta og pakistanski herinn hefur leitað úr lofti. Að sögn O‘Brien fundust svefnpokar, rifin tjöld og dýnur á fjallinu en engin ummerki fundust um mennina. Update on K2 missing #climbers - Pakistan army keeps base camp open, while expedition staff goes home @john_snorri @ali_sadpara @RandhawaAli @AbdulKhalidPTI @RNAKOfficial @GBPolice1422 @rao_ahmad_khan @gilmour_wendy #k2 #K2winter #K2rescue #Legacy pic.twitter.com/JIm9Zem9Te— Vanessa O'Brien (@vobonline) February 14, 2021 Raja Nasir Ali Kahn, ferðamálaráðherrann á svæðinu sem hefur haft leitina á sínu borði, segir á Twitter að John Snorri hafi verið með tvö tæki, sem gefa frá sér staðsetningarupplýsingar, með sér á fjallinu og fartölvu að auki. Hann hafi skilið fartölvuna og annað staðsetningartækið eftir í grunnbúðunum á K2. ... The last signal was received on 5th Feb at 7:13 am PST at elevation 7843m through that device by LO and other climbers at BC. Sajid was accompanying them during this time. And no signal was received afterward...— Raja Nasir Ali Khan (@RNAKOfficial) February 14, 2021 Hitt staðsetningartækið hafi hætt að senda frá sér merki 5. febrúar klukkan 7:13 að staðartíma og hafi hann þá verið í 7843 metra hæð. Sajid hafi verið með honum á þeim tímapunkti en engin merki hafa borist frá tækinu síðan. ... Sajid had to fall back to C3 from an elevation of 8100m due to the malfunctioning of his Oxygen Regulator. The LO Capt Haris sent the laptop of Snorri along @EliaSaikaly to Skardu via Heli, whereas the Garmin Tracking Device was still there at BC until 13/2/21 8:00 am.— Raja Nasir Ali Khan (@RNAKOfficial) February 14, 2021 O‘Brien segir teymið þakklátt stuðningum sem það hefur fundið fyrir frá íbúum Gilgit Baltistan og Skardu en heimamenn hafa hjálpað til við leitina. Hún segir mikilvægan blaðamannafund fara fram á morgun, mánudaginn 15. febrúar, og segir hún fréttirnar sem þar verða tilkynntar sérstaklega tengjast Ali Sadpara. „Í dag er Valentínusardagurinn haldinn hátíðlega víða um heim þannig að þið skulið muna að vera góð við hvort annað og minna þá sem standa ykkur nærri á það hvað ykkur þykir vænt um þá,“ skrifar hún í tilkynningunni. „Þessir þrír sterku og hugrökku fjallagarpar eiga 13 börn, John Snorri Sigurjónsson á 6, Ali Sadpara á 4 og Juan Pablo Mohr á 3, og ég veit að þeir vissu allir hvað fjölskyldur þeirra elska þá mikið,“ skrifar hún.
John Snorri á K2 Fjallamennska Pakistan Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Tæknin sem brýst í gegnum skýjahuluna og veðurofsann á K2 Einn stofnenda Geimvísindastofnunar Íslands hefur haft milligöngu um notkun svokallaðra SAR-gervihnattarmynda við leitina að John Snorra Sigurjónssyni og samferðamönnum hans á fjallinu K2. Hann segir tæknina ekki hafa verið notaða áður við björgunaraðgerð af þessu tagi. Tekist hafi að mynda þann hluta fjallsins, þar sem gönguleiðin liggur, og myndirnar þarfnist hvorki ljóss né heiðríkju. 12. febrúar 2021 15:01 Tæknin sem brýst í gegnum skýjahuluna og veðurofsann á K2 Einn stofnenda Geimvísindastofnunar Íslands hefur haft milligöngu um notkun svokallaðra SAR-gervihnattarmynda við leitina að John Snorra Sigurjónssyni og samferðamönnum hans á fjallinu K2. Hann segir tæknina ekki hafa verið notaða áður við björgunaraðgerð af þessu tagi. Tekist hafi að mynda þann hluta fjallsins, þar sem gönguleiðin liggur, og myndirnar þarfnist hvorki ljóss né heiðríkju. 12. febrúar 2021 15:01 Þorpsbúar telja líklegt að Sadpara hafi freistað þess að bjarga félögum sínum Íbúar í þorpinu hans Ali Sadpara, sem nú er leitað á K2 ásamt John Snorra Sigurjónssyni og Juan Pablo Mohr, telja líklegast að annar félaga hans hafi slasast og Sadpara freistað þess að bjarga hópnum í stað þess að halda áfram niður fjallið. 13. febrúar 2021 13:23 Tíminn með John Snorra stuttur en risti djúpt Elia Saikaly, kanadískur kvikmyndagerðarmaður sem vinnur að gerð heimildarmyndar um leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar og samferðamanna hans á K2, fjallar um kynni sín af John Snorra í ítarlegri færslu á Instagram í dag. Hann segir John Snorra hugrakkan og góðhjartaðan mann, sem framar öllu öðru elski fjölskyldu sína. 11. febrúar 2021 16:01 Mest lesið Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Innlent Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Innlent Matthías leiðir Framsókn í Árborg Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Fleiri fréttir Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Brotist inn hjá Alberti Kvöddu Davíð hinsta sinni Enn óvissa um framtíð blóðmerahalds: „Þetta er stórt og viðkvæmt mál“ Losun virkjana fjórðungi minni með nýrri lofthreinsistöð Vegurinn á Bolafjall ekki lengur á ábyrgð utanríkisráðuneytisins Átta ár fyrir gróf brot gegn gestkomandi barni og eiginkonu Hrönn og Þórir hafna helstu ávirðingum á RIFF „Ég var skelfingu lostinn“ Aðstoða blauta og kalda gönguskíðamenn á Hofsjökli Óveðrinu slotað og ASÍ með áhyggjur af bensínverðinu Fimm fólksbílar og flutningabíll fastir á Holtavörðuheiði Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Listi Framsóknar í Kópavogi kynntur og Orri áfram oddviti Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Rændi verslun vopnaður hníf Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Sjá meira
Tæknin sem brýst í gegnum skýjahuluna og veðurofsann á K2 Einn stofnenda Geimvísindastofnunar Íslands hefur haft milligöngu um notkun svokallaðra SAR-gervihnattarmynda við leitina að John Snorra Sigurjónssyni og samferðamönnum hans á fjallinu K2. Hann segir tæknina ekki hafa verið notaða áður við björgunaraðgerð af þessu tagi. Tekist hafi að mynda þann hluta fjallsins, þar sem gönguleiðin liggur, og myndirnar þarfnist hvorki ljóss né heiðríkju. 12. febrúar 2021 15:01
Tæknin sem brýst í gegnum skýjahuluna og veðurofsann á K2 Einn stofnenda Geimvísindastofnunar Íslands hefur haft milligöngu um notkun svokallaðra SAR-gervihnattarmynda við leitina að John Snorra Sigurjónssyni og samferðamönnum hans á fjallinu K2. Hann segir tæknina ekki hafa verið notaða áður við björgunaraðgerð af þessu tagi. Tekist hafi að mynda þann hluta fjallsins, þar sem gönguleiðin liggur, og myndirnar þarfnist hvorki ljóss né heiðríkju. 12. febrúar 2021 15:01
Þorpsbúar telja líklegt að Sadpara hafi freistað þess að bjarga félögum sínum Íbúar í þorpinu hans Ali Sadpara, sem nú er leitað á K2 ásamt John Snorra Sigurjónssyni og Juan Pablo Mohr, telja líklegast að annar félaga hans hafi slasast og Sadpara freistað þess að bjarga hópnum í stað þess að halda áfram niður fjallið. 13. febrúar 2021 13:23
Tíminn með John Snorra stuttur en risti djúpt Elia Saikaly, kanadískur kvikmyndagerðarmaður sem vinnur að gerð heimildarmyndar um leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar og samferðamanna hans á K2, fjallar um kynni sín af John Snorra í ítarlegri færslu á Instagram í dag. Hann segir John Snorra hugrakkan og góðhjartaðan mann, sem framar öllu öðru elski fjölskyldu sína. 11. febrúar 2021 16:01