Handbolti

Sjáðu vítadóminn sem FH-ingar voru svo reiðir yfir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarki Bóasson bendir á vítalínuna.
Bjarki Bóasson bendir á vítalínuna. stöð 2 sport

FH-ingar voru langt frá því að vera sáttir með vítið sem var dæmt á þá undir lok leiksins gegn KA-mönnum í Olís-deildinni í gær.

Í þann mund sem leiktíminn rann út, í stöðunni 31-30, braut Leonharð Þorgeir Harðarson á Daða Jónssyni. Fyrst í stað dæmdu dómarar leiksins, þeir Gunnar Óli Gústafsson og Bjarki Bóasson, aukakast. 

Þeir byrjuðu síðan að ræða saman og eftir nokkra reikistefnu dæmdu þeir vítakast við ákaflega litla hrifningu FH-inga og gáfu Leonharð rauða spjaldið. 

Andri Snær Stefánsson tók vítið, skoraði og jafnaði í 31-31 sem urðu lokatölur leiksins. Vítakastsdóminn og vítið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Þar má einnig sjá viðtöl við þjálfara FH og KA, Sigurstein Arndal og Jónatan Magnússon, þar sem þeir ræða um vítadóminn.

Klippa: Vítið í leik FH og KA

„Ég held að það sé best að tjá sig sem minnst. Maður skilur aldrei þessar reglur undir lok leikja, það taka bara við einhver ný lögmál þegar 5-10 sekúndur eru eftir og þetta leit út fyrir mér að vera mjög saklaust. Ég vil samt leggja mikla áherslu á að það er óásættanlegt að FH tapi niður þriggja marka forystu á þetta skömmum tíma. Ég ætla því ekki að hengja mig í einn dóm,“ sagði Sigursteinn.

Eins og hann segir var FH með pálmann í höndunum undir lokin en kastaði sigrinum frá sér. KA skoraði síðustu fjögur mörk leiksins og tryggði sér jafntefli.


Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.


Tengdar fréttir

Sigursteinn: Best að ég tjái mig sem minnst

Það er óhætt að segja að dramatíkin hafi verið allsráðandi í Kaplakrika þegar FH og KA gerðu 31-31 jafntefli í Olísdeild karla í handbolta. KA jafnaði metin úr vítakasti þegar leiktíminn var liðinn og voru FH-ingar æfir yfir þeim örlagaríka vítadómi. Sigursteinn Arndal er þjálfari FH og hann var augljóslega ekki sáttur eftir leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×