Handbolti

Topparnir í tölfræðinni á móti Noregi: Sóknin og línan komu í leitirnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson var allt í öllu í frábærum sóknarleik íslenska liðsins í kvöld.
Gísli Þorgeir Kristjánsson var allt í öllu í frábærum sóknarleik íslenska liðsins í kvöld. EPA-EFE/Anne-Christine Poujoulat

Það var gaman að horfa á sóknarleik íslenska liðsins á móti Norðmönnum í kvöld og íslenska liðið fór að finna línumennina sem höfðu verið í felum nær allt mótið.

Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með tveimur mörkum á móti Norðmönnum, 33-35 í lokaleik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu 2021 í Egyptalandi.

Vísir fylgist vel með tölfræði íslenska liðsins á mótinu og hefur nú tekið saman þá leikmenn sem sköruðu fram úr í tölunum í þessum opnunarleik Íslands á mótinu.

Norðmenn keyrðu ítrekað upp hraðann í þessum leik og leikurinn var miklu hraðari en í síðustu leikjum íslenska liðsins. Vörnin hefur verið stolt íslenska liðsins á mótinu en hélt ekki alveg í við frábært lið Norðmanna í kvöld.

Það var aftur á móti stórskemmtilegt að horfa á sóknarleik íslenska liðsins lifna við. Sóknin hefur verið vandamál íslensku strákanna á mótinu en hún gekk mjög vel í kvöld og hvað eftir annað galopnuðu íslensku strákarnir vörn norska liðsins. Nokkur dauðafæri á mikilvægum tímapunktum fóru með sigurmöguleika íslenska liðsins.

Línumenn íslenska liðsins komu í leitirnar í kvöld en þeir Elliði Snær Viðarsson (4 mörk), Arnar Freyr Arnarsson (3 mörk) og Ýmir Örn Gíslason (1 mark) skoruðu jafnmörg mörk í kvöld og þeir höfðu skorað samanlagt í fyrstu fimm leikjum liðsins á HM. Íslenska liðið fékk alls tíu mörk af línunni í leiknum.

Ómar Ingi Magnússon fékk tíu í einkunn fyrir sóknarleik sinn en hann nýtti öll fjögur skotin sín og átti átta stoðsendingar. Þá fiskaði Gísli Þorgeir Kristjánsson fimm Norðmenn útaf í tvær mínútur auk þess að fiska fjögur víti og gefa þrjár stoðsendingar.

Hér fyrir neðan má sjá toppa íslenska liðsins í tölfræðinni.

- Íslensku landsliðsmennirnir á móti Noregi á HM 2021 -

Hver skoraði mest:

  • 1. Bjarki Már Elísson 6/3
  • 2. Ólafur Guðmundsson 5
  • 3. Ómar Ingi Magnússon 4/2
  • 3. Gísli Þorgeir Kristjánsson 4
  • 3. Elliði Snær Viðarsson 4
  • 6. Arnar Freyr Arnarsson 3
  • 6. Sigvaldi Guðjónsson 3

Markahæstir í fyrri hálfleik:

  • 1. Bjarki Már Elísson 4/3
  • 2. Ólafur Guðmundsson 3
  • 3. Arnar Freyr Arnarsson 2
  • 3. Sigvaldi Guðjónsson 2
  • 3. Elliði Snær Viðarsson 2

Markahæstir í seinni hálfeik:

  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 3
  • 1. Ómar Ingi Magnússon 3/2
  • 3. Bjarki Már Elísson 2
  • 3. Ólafur Guðmundsson 2
  • 3. Elliði Snær Viðarsson 2

Hver varði flest skot:

  • 1. Viktor Gísli Hallgrímsson 10/1 (30%)
  • 2. Ágúst Elí Björgvinsson 5 (42%)
  • 3. Björgvin Páll Gústavsson 0 (0%)

Hver spilaði mest í leiknum:

  • 1. Bjarki Már Elísson 56:52
  • 2. Sigvaldi Guðjónsson 56:33
  • 3. Ólafur Guðmundsson 52:02
  • 4. Ómar Ingi Magnússon 49:35
  • 5. Elliði Snær Viðarsson 40:05
  • 6. Ýmir Örn Gíslason 36:39

Hver skaut oftast á markið:

  • 1. Ólafur Guðmundsson 11
  • 2. Bjarki Már Elísson 9
  • 3. Gísli Þorgeir Kristjánsson 8
  • 4. Elliði Snær Viðarsson 6
  • 5. Arnar Freyr Arnarsson 5
  • 5. Kristján Örn Kristjánsson 5

Hver gaf flestar stoðsendingar:

  • 1. Ómar Ingi Magnússon 8
  • 2. Ólafur Guðmundsson 6
  • 3. Gísli Þorgeir Kristjánsson 3
  • 4. Ýmir Örn Gíslason 1
  • 4. Magnús Óli Magnússon 1
  • 4. Kristján Örn Kristjánsson 1

Hver átti þátt í flestum mörkum: (Mörk + stoðsendingar)

  • 1. Ómar Ingi Magnússon 12
  • 2. Ólafur Guðmundsson 11
  • 3. Gísli Þorgeir Kristjánsson 7
  • 4. Bjarki Már Elísson 6
  • 5. Elliði Snær Viðarsson 4
  • 6. Arnar Freyr Arnarsson 3
  • 6. Sigvaldi Guðjónsson 3

Hver stoppaði oftast í vörninni (HB Statz):

  • 1. Ýmir Örn Gíslason 5
  • 2. Arnar Freyr Arnarsson 2
  • 2. Ólafur Andrés Guðmundsson 2
  • 4. Elliði Snær Viðarsson 1
  • 4. Ómar Ingi Magnússon 1
  • 4. Elvar Örn Jónsson 1

Mörk skoruð í tómt mark

Enginn

Hver tapaði boltanum oftast:

  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 3
  • 2. Bjarki Már Elísson 2
  • 3. Ómar Ingi Magnússon 1
  • 3. Kristján Örn Kristjánsson 1

Flest varin skot í vörn:

Engin

Hver fiskaði flest víti:

  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 4
  • 2. Ýmir Örn Gíslason 1
  • 2. Ómar Ingi Magnússon 1
  • 2. Elliði Snær Viðarsson 1

Hver fiskaði flesta brottrekstra

  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 5
  • 2. Ómar Ingi Magnússon 1
  • 3. Oddur Grétarsson 1
  • 4. Elliði Snær Viðarsson 1

Flestir brottekstrar:

  • 1. Elliði Snær Viðarsson 3
  • 2. Ýmir Örn Gíslason 2
  • 3. Ólafur Guðmundsson 1
  • 3. Gísli Þorgeir Kristjánsson 1
  • 3. Sigvaldi Guðjónsson 1

Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í sókn (HB Statz):

  • 1. Ómar Ingi Magnússon 10,0
  • 2. Ólafur Guðmundsson 7,9
  • 3. Gísli Þorgeir Kristjánsson 7,5
  • 4. Elliði Snær Viðarsson 7,2
  • 5. Bjarki Már Elísson 7,0

Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í vörn (HB Statz):

  • 1. Ýmir Örn Gíslason 7,7
  • 2. Ómar Ingi Magnússon 7,0
  • 3. Ólafur Guðmundsson 6,3
  • 3. Arnar Freyr Arnarsson 6,3
  • 5. Elliði Snær Viðarsson 5,9
  • -

- Hvaðan komu flest mörk íslenska liðsins í leiknum -

  • 6 með langskotum
  • 5 með gegnumbrotum
  • 10 af línu
  • 2 úr hægra horni
  • 4 úr hraðaupphlaupum (1 með seinni bylgju)
  • 5 úr vítum
  • 2 úr vinstra horni
  • -

- Plús & mínus kladdinn í leiknum -

  • Mörk með langskotum: Noregur +6 (6-12)
  • Mörk af línu: Ísland +6 (10-5)
  • Mörk úr hraðaupphlaupum: Noregur +4 (4-8)
  • Tapaðir boltar: Jafnt (7-7)
  • Fiskuð víti: Ísland +1 (7-6)
  • Varin skot markvarða: Noregur +4 (15-19)
  • Varin víti markvarða: Noregur +1 (1-2)
  • Misheppnuð skot: Ísland +6 (22-16)
  • Löglegar stöðvanir: Noregur +3 (12-15)
  • Refsimínútur: Jafnt (16-16)
  • --

- Góðu og slæmu kaflarnir í leiknum -

  • Fyrri hálfleikurinn:
  • 1. til 10. mínúta: Jafnt (5-5)
  • 11. til 20. mínúta: Noregur +3 (4-7)
  • 21. til 30. mínúta: Ísland +3 (9-6)
  • Seinni hálfleikurinn:
  • 31. til 40. mínúta: Noregur +3 (3-6)
  • 41. til 50. mínúta: Noregur +2 (5-7)
  • 51. til 60. mínúta: Ísland +3 (7-4)
  • ---
  • Byrjun hálfleikja: Noregur +3 (8-11)
  • Lok hálfleikja: Ísland +6 (16-10)
  • Fyrri hálfleikur: Jafnt (18-18)
  • Seinni hálfleikur: Noregur +2 (15-17)

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×