Handbolti

Logi hefði rekið Tomas Svens­son

Anton Ingi Leifsson skrifar
Tomas Svensson, til vinstri, og Logi Geirsson, til hægri.
Tomas Svensson, til vinstri, og Logi Geirsson, til hægri. Getty/picture alliance/skjáskot/stöð 2 sport

Logi Geirsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta, hefði rekið Tomas Svensson úr starfi sínu sem aðstoðarmaður og markmannsþjálfari eftir ummæli hans um fjarveru Arons Pálmarssonar.

Tomas Svensson, markmannsþjálfari íslenska liðsins, veitti sænskum blaðamanni og samlanda viðtal og þar talaði hann meðal annars um Aron og meiðsli hans. Svensson hélt því fram að læknar íslenska liðsins hefðu ekki fengið að skoða Aron en það mun ekki vera rétt hjá honum.

Sá sænski baðst síðan afsökunar en Aron sagði sjálfur í viðtali að Tomas hafi verið fljótur til og beðist afsökunar. Aron hafi hins vegar spurt hann hvað honum gengi til með ummælunum en Logi Geirsson ræddi við Harmageddon um málið fyrir leikinn gegn Sviss í gær.

„Það er búið að vera alls konar í gangi á þessu móti. Mikið af leikmönnum að væla um hitt og þetta, aðbúnað og mikið væll í kringum þetta heilt yfir. Svo alls konar fréttir eins og á Vísi með Aron og Tomas Svensson,“ sagði Logi.

„Við erum með Thomas Svensson sem markmannsþjálfara en ég væri hins vegar búinn að reka hann, ef ég væri þjálfari liðsins. Hann mætir þarna í viðtal á einhverjum Zoom-fundi og sakar Aron, HSÍ og Brynjólf (lækni landsliðsins) um að eitthvað gruggugt sé í gangi.“

„Hann talar um möguleika á því að Aron sé ekki með því við eigum ekki möguleika á verðlaunum og talar um að það sé mögulega samningur við Barcelona. Þetta er bara rugl. Aron er bara að glíma við alvarleg meiðsli. Það var bara talið skynsamlegt að hann væri ekkert að spila.“

Logi segir að læknar landsliðsins hafi verið með í ákvörðuninni og að hann hefði skipt Tomasi út. Hann og Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari séu þó ekki einn og sami maðurinn og því öðruvísi hugsunarháttur hjá þeim.

„Læknir Íslands voru meðvitaðir um allt ferlið. Með öll sjúkragögn undir höndum. Það vita allir að Aron vildi vera með á stórmóti. Hann er okkar lang besti maður. Svo mér finnst þetta klaufaleg samskipti. Það er talað um misskilning. Mér finnst þetta bara trufla liðið. Hann á bara að vera markmannsþjálfari.“

„Hann er búinn að vera þarna í nokkur ár og ég sé ekki að það sé búið að skila mjög miklu. Ég hefði nýtt tækifærið og skipt honum út en ég er sem betur fer ekki þjálfari. Ég og Gummi erum ekki eins og ekki með eins skoðanir. Ég hefði klárlega gert þetta. Það eru tvær vikur frá því að það kom tilkynning að leikmaðurinn væri ekki með. Að tala um þetta núna og allar mest lesnu fréttirnar á Íslandi eru um þetta. Hann baðst afsökunar en það hefði ekki verið nóg fyrir mig en ég er sem betur fer ekki þjálfari,“ sagði Logi léttur.

Umræðuna má heyra eftir rúmlega 4:30 mínútur.


Tengdar fréttir

„Haldið þið virkilega að Gummi hefði bara sleppt Aroni?“

„Þetta eru bara fullorðnir menn. Þeir fara yfir málin, þetta er búið og áfram með smjörið. Ég er alveg pottþéttur á því að þannig verður þetta,“ segir Bjarni Fritzson um framtíðarsamskipti Arons Pálmarssonar og Tomasar Svensson.

„Ekkert gruggugt í gangi“

„Það er í rauninni ekkert gruggugt í gangi,“ segir Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, sem hefur nú tjáð sig eftir að Tomas Svensson gaf í skyn að eitthvað annað en meiðsli hefði ráðið því að hann færi ekki með Íslandi á HM í Egyptalandi.

„Trúnaðarbrestur hjá Tomasi Svensson“

Jóhann Gunnar Einarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson furða sig á ummælum Tomasar Svensson, markvarðaþjálfara íslenska handboltalandsliðsins, um meiðsli Arons Pálmarssonar sem er ekki með á HM í Egyptalandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×