Matur

Kókos ostakaka með ástríðuávaxtasósu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir hefur starfað á veitingahúsum í Reykjavík frá 14 ára aldri.
Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir hefur starfað á veitingahúsum í Reykjavík frá 14 ára aldri. Samsett/Erla Þóra - Vilhelm

Sælkerinn og eftirréttakokkurinn Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir setti saman þessa uppskrift að kókos ostaköku með ávaxtasósu sem gerð er úr ástríðuávöxtum. 

Hægt er að fylgjast með Erlu Þóru á Instagram þar sem hún er dugleg að deila uppskriftum og góðum ráðum tengdum matargerð og bakstri.

Botn

  • 400 gr hafrakex
  • 50 gr smjör

Myljið kexið fínt og blandið saman við brætt smjörið. Þrýstið kexblöndunni í form og kælið á meðan þið gerið fyllinguna.

Mér finnst best að nota smelluform og setja bökunarpappír í botninn, þá er auðveldast að ná kökunni úr.

Kókos-ostakaka

  • 7 gr matarlím
  • 500 gr kókosrjómi
  • 150 gr flórsykur
  • 400 gr rjómaostur
  • 250 gr rjómi
  • 1 tsk vanilla

Matarlímið er lagt í bleyti. Setjið rjómaost í hrærivélaskál og mýkið hann aðeins upp. Bætið síðan við flórsykri,kókosrjóma og vanillu. Takið matarlímið uppúr vatninu og setjið í lítinn pott og bræðið það. Þetta tekur nokkrar sekúndur og má alls ekki brenna. Blandið bræddu matarlíminu svo saman við rjómaostablönduna.

Þeytið rjómann og blandið rjómaostablöndunni varlega saman við með sleif.

Setjið í form ofan á kexbotninn og kælið yfir nótt.

Kókos mulningur

  • 50 gr hveiti
  • 50 gr sykur
  • 60 gr smjör
  • 60 gr kókosflögur

Setjið hveiti,sykur og smjör í skál og blandið vel saman með höndunum.

Dreifið á bökunarplötu og bakið við 180* þar til blandan verður gullinbrún.

Bakið einnig kókosflögurnar á sér bakka því þær taka aðeins nokkrar mínútur.

Blandið síðan öllu saman.

Passion sósa

  • 3 stk passion
  • 100 gr sykur
  • Safi úr 1/2 lime

Allt sett saman í lítinn pott og fengin upp suða.

Kakan er síðan sett á disk þegar hún er orðin stíf. Síðan fer sósan og kókos mulingurinn ofan á.

Njótið!

Við mælum með því að allir sælkerar fylgi Erlu Þóru á Instagram HÉR!


Tengdar fréttir

Einfaldar og góðar marineraðar ólífur

„Ólífur eru góðar í svo ótrúlega margt en ekki síðri einar og sér en þá elska ég að setja þær í marineringu og er þetta mín uppáhalds,“ segir kokkurinn Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir.

Tiramisu vöfflur að hætti Erlu Þóru Bergmann

Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir er kokkur á veitingastaðnum Fjallkonunni og hefur þar vakið athygli fyrir eftirréttina sína. Hún deilir hér uppskrift af tiramisu vöfflum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×