Lögregla á Norðurlandi eystra hefur enn ekki getað rætt við mann sem grunaður er um að hafa stungið annan mann á Kópaskeri aðfaranótt laugardags. Þeir liggja báðir á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri. Tæknideild lögreglu á höfuðborgarsvæðinu lauk vettvangsrannsókn í gær.
Þrennt var handtekið eftir að tilkynnt var um árásina aðfaranótt laugardags. Tveimur þeirra, manni og konu, var sleppt úr haldi á laugardag þar sem ekki er talið að þau tengist árásinni.
Þolandi árásarinnar var fluttur á gjörgæslu en samkvæmt heimildum Vísis var hann stunginn sex sinnum. Þá stóð til að taka skýrslu af meintum geranda, sem sagður er hafa brotið sér leið inn í hús þolandans. Ekki reyndist unnt að ræða við hann þar sem hann fannst rænulítill í fangaklefa sínum og var einnig fluttur á gjörgæslu.
Sjá einnig: Hefur sjálfur tvisvar verið dæmdur fyrir hnífstungur
Bergur Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Norðurlandi eystra, segir í samtali við Vísi að vettvangsrannsókn tæknideildar lögreglu á höfuðborgarsvæðinu hafi lokið seint í gærkvöldi.
Bergur kveðst ekki hafa upplýsingar um líðan mannanna í dag. Ekki hefur reynst unnt að taka af þeim skýrslu og staða á rannsókninni þannig eftir því.
Bergur segir að þó hafi staðið til að reyna að vekja hinn grunaða í dag. Þá sé ekki vitað hvað hafi orðið til þess að maðurinn var rænulítill í klefa sínum.
Inntur eftir því hvort lögregla hafi skýra mynd af því sem gerðist aðfaranótt laugardags segir Bergur að búið sé að taka skýrslu af einum sem var í íbúðinni. Sá hafi þó ekki orðið vitni að árásinni sjálfri.
Þá hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort farið verði fram á gæsluvarðhald þar sem ekki hefur reynst unnt að ræða við hinn grunaða. Sú ákvörðun segir Bergur að muni byggjast á rannsóknarhagsmunum og því sem hinn grunaði lýsir í yfirheyrslu.
Fréttablaðið greindi frá því í morgun að þolandi árásarinnar hefði sjálfur í tvígang hlotið þriggja ára dóm fyrir hnífsstunguárás.