Lífið

Fjögurra manna fjölskylda sem hefur komið sér vel fyrir í smáhýsi á hjólum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Einstaklega vel hannað hús. 
Einstaklega vel hannað hús. 

Á YouTube-síðunni Living Big In A Tiny House hittir þáttastjórnandinn Bryce Langston fólk sem býr í litlu rými en nær að nýta sér plássið vel.

Að þessu sinni fór Langston í heimalandið og hitti parið Amy og Greg í Queensland í Ástralíu.

Áhugi þeirra á smáhýsum kviknaði þegar þau sáu einmitt innslag frá Langston og hafa þau komið fyrir stórkostlegu smáhýsi úti í sveit og það á hjólum, svo hægt sé að færa heimilið.

Fallegur sólarpallur er fyrir utan heimilið og sem nýtist vel fyrir fjölskylduna en aðra hverja viku eru börn Greg á staðnum og fer vel um alla á heimilinu.

Þessi fjögurra manna fjölskylda nýtur lífsins í þessu smáhýsi en umfjöllunina um húsið má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×