Friðurinn rofinn í Kabúl Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. febrúar 2016 21:56 Frá Kabúl, höfuðborg Afganistans. vísir/getty
Tvær aðskildar hryðjuverkaárásir urðu í það minnsta 27 að bana og særðu tugi manna í Afganistan í dag. Fyrri árásin átti sér stað í morgun í Kunar-héraðinu í austurhluta landsins en þar sprengdi maður sig í loft upp við hlið manns sem leitt hafði andspyrnu íbúa héraðsins gegn Talíbönum. Alls létust 11 aðrir í sprengingunni og talið er að 36 hafi særst sömuleiðis. Hin árásin átti sér stað nærri varnarmálaráðuneyti landsins í höfuðborginni Kabúl. Þar sprengdi maður sig við rútu á vegum afganska hersins. Fimmtán biðu bana, þar af 11 einstaklingar úr röðum hersins. Fjórir óbreyttir borgarar létu einnig lífið og 39 særðust. Talíbanar hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni. Sprenginguna mátti heyra víða í Kabúl og þykkur reykur steig upp frá varnarmálaráðuneytinu. Þetta var fyrsta stóra sprengingin í Kabúl frá 1. febrúar en afganski herinn undirbýr sig nú fyrir árlegar árásir Talíbana. Alla jafna herðast átökin í mars og apríl þegar fjallvegir verða færir eftir að snjóa leysir. Vonast er til að friðarumleitanir Afgana og Bandaríkjamanna við Talíbana í byrjun næsta mánaðar beri árangur. Munu þær fara fram í Islamabad í Pakistan en óttast er að Talíbanar blási til stórsóknar til að styrkja samningsstöðu sína í aðdraganda fundarins.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira