WOW fækkar ferðum til Kaupmannahafnar Atli Ísleifsson skrifar 15. desember 2014 18:27 Frá Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn. Vísir/Pjetur
Flugfélagið WOW hefur ákveðið að fækka ferðum sínum til Kaupmannahafnar fyrstu mánuði næsta árs. Í fyrstu stóð til að WOW flygi til dönsku höfuðborgarinnar á hverjum degi. Ferðunum mun svo fjölga á ný þegar sumaráætlun félagsins tekur gildi í lok mars. Þetta kemur fram á vefsíðunni Túristi.is. Í frétt Túrista segir að í byrjun árs hafi norska flugfélagið Norwegian fengið leyfi fyrir áætlunarflugi milli Keflavíkur og Kastrup en ekkert orðið úr þeim áætlunum. Því verði Icelandair og WOW air áfram ein um þessa flugleið. Icelandair hefur flogið allt að fimmtán ferðir í viku til Kaupmannahafnar yfir vetrarmánuðina en ferðir WOW verið sjö til tíu. „Í flugáætlun WOW air er gert ráð fyrir daglegu morgunflugi til Kaupmannahafnar frá Keflavík fyrstu þrjá mánuði næsta árs en í bókunarvélinni á heimasíðu félagsins hefur ferðunum fækkað niður í allt að þrjár í viku. Næsta febrúar mun WOW air því bjóða upp á sextán ferðir til Kaupmannahafnar en þær voru tuttugu og fjórar í febrúar í ár. Það jafngildir þriðjungs samdrætti. Ekki fást skýringar á þessum breytingum hjá WOW air,“ segir í fréttinni.
Mest lesið Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Sjá meira
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent