Reyndu að skilja og hvetja aðra í kring um þig Gunnlaug Thorlacius skrifar 29. janúar 2015 07:00 Í sjöunda geðorðinu: reyndu að skilja og hvetja aðra í kring um þig, felst ágæt speki sem er vel til þess fallin að ýta undir samkennd og einingu óháð andlegu atgervi fólks. Hvatning veitir einstaklingum tilgang og stefnu og eykur vilja þeirra til að standast þær kröfur sem til þeirra eru gerðar. Hvatning ýtir undir virðingu, áhuga og umhyggju í samskiptum manna. Hvöt er skilgreind sem innri drifkraftur eða skyndileg löngun. Orðið hvatning hefur sömu merkingu og latneska orðið motivus, sem þýðir að hreyfa sig og því má líta svo á að hvatning sé innra afl sem drífur fólk áfram í átt að settum markmiðum. Geðsjúkdómar fara ekki í manngreinarálit og hver sem er getur átt á hættu að veikjast. Með aukinni þekkingu og markvissari endurhæfingu hefur þeim hins vegar fjölgað sem hafa náð góðum bata og endurheimt lífsgæði sín eftir að hafa veikst af geðsjúkdómum. Geðsjúkdómar eru ekki frábugðnir öðrum alvarlegum sjúkdómum að því leyti að þeir geta haft talsverð áhrif á alla fjölskylduna. Það er mikilvægt að hjálpa öllum sem standa að hinum veika að ná bata. Leiðarljós Geðverndarfélags Íslands er að standa vörð um geðheilbrigði og stuðla að forvörnum. Út frá gildum félagsins að fræða, fyrirbyggja, rannsaka og vinna saman voru sett markmið sem fela í sér að félagið mun leggja áherslur á forvarnir í geðheilbrigðismálum auk þess sem markmiðið er að styðja við og hvetja þá sem vilja leggja sitt af mörkum. Það er von okkar hjá Geðverndarfélagi Íslands að það megi verða þeim hvatning og styrkur sem á þurfa að halda.Markvissari ákvæði Að mati stjórnar Geðverndarfélags Íslands skortir markvissari ákvæði í íslensk lög til samræmis við önnur norræn ríki þegar kemur að forvörnum og þjónustu við börn sem eiga foreldra með langvinn veikindi. Mikilvægt er að mörkuð verði heildræn stefna í geðheilbrigðismálum til framtíðar og þá er okkur kappsmál að hugað verði vel að börnum því þeirra rödd hefur ekki verið sterk hingað til. Oft er talað um mikilvægi þess að ná sátt við fortíðina svo hún standi ekki í vegi fyrir því að við njótum lífsins í dag. Það er því mikilvægt að hvetja og styðja við börn og unglinga sem glíma við erfiðleika og reyna þannig að minnka líkurnar á að fortíðin hamli þroska þeirra síðar meir. Einhvers staðar las ég spakmæli sem var á þessa leið; Allir sem við hittum eru í einhvers konar baráttu sem við vitum ekkert um, því er mikilvægt að sýna nærgætni – alltaf.Greinin er sjöunda greinin af tíu í greinaröð jafn margra úrræða og/eða félaga á geðheilbrigðissviðinu á höfuðborgarsvæðinu um Geðorðin 10. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar