Opið bréf til formanns Sjálfstæðisflokksins Þórir Stephensen skrifar 22. ágúst 2013 07:00 Fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson. Ég neyddist til að segja mig úr Sjálfstæðisflokknum eftir landsfund hans 2009. Ástæðan var hvernig sá landsfundur afgreiddi Evrópumálin. Og það fóru fleiri en ég, enda fækkaði nokkuð í þingflokknum eftir næstu kosningar. Þrátt fyrir úrsögn mína hef ég horft mjög til flokksins, því mörg af skoðanasystkinum mínum fylgja honum enn af svo stakri tryggð að ég hef ekki gefið upp vonina um að raunhæf Evrópustefna gæti komið úr þeirri átt. Íslensk stjórnmál standa nú á vegamótum. Stjórnarsáttmálinn geymir ákveðna ferðaáætlun um hvert skuli halda frá þessum krossgötum. Þar er nefnt að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB. Á fundi í aðdraganda kosninganna í vor og í viðtali við Fréttablaðið 24. apríl sl. sagðir þú orðrétt: „Við höfum haft það sem hluta af okkar stefnu að opna fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu til að útkljá þetta mál og við munum standa við það.“ Út á þetta greiddu margir Evrópusinnar flokknum atkvæði sitt, því engum hefur hingað til dottið í hug að Bjarni Benediktsson stæði ekki við orð sín. Fréttir síðustu daga, sem ég hef bæði úr Fréttablaðinu og mbl.is, segja mér að bæði þingflokksformaður þinn og fleiri úr þingliðinu hafa talið þetta vera kosningaloforð og aldrei dottið í hug að ekki yrði staðið við það. En nú koma framsóknarmenn aftan að ykkur með óvæntar yfirlýsingar og nánast ódrengilegar. Það verður engin þjóðaratkvæðagreiðsla. Menn hafa beðið viðbragða þinna. Samkvæmt fréttamiðlum eru þau svo loðin að vart er hægt að finna þar neitt sem treystandi er á. Þú stendur þar ekki við þín fyrri orð. Í mínum huga hopar þú á hæli og hugsar meira um að verja völd en hugsjónir. Þú segir að ekki liggi fyrir nein ákvörðun um hvenær eða hvort þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin. Staðreyndin er þó að utanríkisráðherrann lýsir því skýrlega yfir að það verði ekki gert. Dettur þér virkilega í hug að nokkur maður trúi því að skýrsla, sem þú nefnir og hann lætur taka saman fyrir Alþingi, geti leitt til þess að ákvörðun um þjóðaratkvæðagreiðslu, sem Framsóknarflokkurinn er á móti, fáist rædd af einhverju viti? Þú telur orð þín ekki svik við þá sjálfstæðismenn sem styðja áframhaldandi viðræður við ESB. Ég held að margir í þeirra hópi séu ekki sammála því áliti og sjái að þarna ætli Framsókn að ráða og núverandi forysta Sjálfstæðisflokksins sé ekki líkleg til að breyta því. En hvers vegna þjóðaratkvæðagreiðslu? Enginn okkar getur vitað hvort hann vill að þjóð okkar gangi inn í Evrópusambandið fyrr en hann hefur séð samning um þau mál og þar með sannfært sjálfan sig um að hann sé þjóðinni ávinningur, geri hana sterkari á hálu svelli heimsmála. Þetta tækifæri virðast framsóknarmenn nú vilja taka af þjóðinni. Það væri aðför að frjálsri hugsun, sem ég hélt að Sjálfstæðisflokkurinn vildi verja. Þú hefur loforð að efna, sem hlýtur að knýja þig til átaka um þetta mál. Það varðar sóma þinn. Við Evrópusinnar væntum þess að þú sýnir í þessu máli, og ætíð, í senn þor hugsjónamannsins og þrótt hins drenglynda og hugumstóra baráttumanns. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar