Willum: Þeir voru betri á öllum sviðum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. júní 2011 23:44
Willum Þór Þórsson þjálfari Keflavíkur sagði að sitt lið hefði verið tekið taktískt í bólinu af Valsmönnum. „Þetta var þungt hjá okkur og Valsararnir voru bara betri en við í dag. Voru taktískt sterkir og teymdu okkur fram á völlinn. Voru hraðir og markvissir í sínum aðgerðum," sagði willum. Sigur Valsmanna var síst of stór og willum tók undir það. „Ég er alveg sammála því. Þeir voru betri á öllum sviðum og við í brasi með varnarleikinn. Þetta var það slakasta sem við höfum sýnt varnarlega í sumar." Heimavöllur Keflvíkinga hefur reynst þeim góður í gegnum tíðina og undarlegt að sjá liðið yfirspilað þar. „Við vorum taktískt teknir í bólinu. En ég veit ekki hversu mikið vígi völlurinn er. Við höfum ekki spilað á honum í mánuð og ekki æft á honum. Auðvitað á Keflavíkurvöllur að vera okkur vígi en Valsliðið var bara betra liðið í dag" sagði Willum. Framundan er bikarleikur gegn KR á sunnudag en það er stutt á milli leikja hjá Keflvíkingum líkt og hjá öðrum liðum þessa dagana. „Það er þriðji leikurinn á sex dögum og svo bætist fjórði leikurinn við á níu dögum. Þú spilar ekkert í mánuð og svo koma fjórir leikir á níu dögum. Þetta er mjög sérstakt prógram," sagði Willum sem segir erfitt fyrir leikmenn að jafna sig á tveimur dögum. Keflvíkingum gengur lítið þessa dagana og Willum segir óskandi að hægt verði að styrkja liðið þegar félagsskiptaglugginn opnar um miðjan júlí. „Ég vildi óska þess að við hefðum ráðrúm og fjárhagslega burði til þess að styrkja liðið. Við fórum lágstemmdir inn í mótið en ég held við verðum að gera okkur grein fyrir raunveruleikanum. Vonandi getum við styrkt liðið fyrir þá baráttu sem við erum að fara að heyja," sagði Willum að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti EM í dag: Slagsmál í Malmö og dónar í dinner Handbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Fleiri fréttir Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Sjá meira