Ísland á að fara dómstólaleiðina

Ísland var tilnefnt sem fyrsta varaþjóð Evrópu af EHF en það virtist engin áhrif hafa á forráðamenn IHF sem veittu Þýskalandi þátttökurétt á þeim forsendum að liðið náði bestum árangri (5. sæti) á HM 2013 af þeim liðum sem féllu út í undankeppni HM í Katar.
Olof Bruchmann er ritstjóri vikuritsins Handball Woche, eins virtasta fjölmiðils Þýskalands sem fjallar um handbolta. Bruchmann segir að ákvörðun IHF hafi að mestu verið tekið fagnandi í ytra.
Ánægja í Þýskalandi
„Ég er auðvitað ánægður með að Þýskaland verði með á HM. Það þýðir að við getum vakið meiri athygli á okkar störfum auk þess sem þátttakan hefur bein áhrif á áskriftasölu,“ sagði Bruchmann í samtali við Fréttablaðið. „Maður heyrir þó ýmislegt misjafnt um þessa ákvörðun og umræða hefur farið fram um ástæður þess að Þýskalandi var úthlutað þessum „wildcard“-þátttökurétti.
Bruchmann á þó ekki von á því að þýska handboltaforystan muni velta vöngum yfir málinu. „Sérstaklega ekki þar sem Þýskaland missti af ÓL í Lundúnum, EM í Danmörku og tapaði fyrir Póllandi í umspilinu fyrir HM í Katar. Það er hlutverk okkar blaðamanna að leita allra mögulega svara en það mun enginn leikmaður, þjálfari eða forráðamaður liðs í Þýskalandi kvarta undan þessu. Þeir eru allir ánægðir með að þýska landsliðið sé aftur með á stórmóti.“
Snýst líka um Ólympíuleikana
Bruchmann segir morgunljóst að miklir fjárhagslegir hagsmunir eru fólgnir í þátttöku Þýskalands á stórmóti eins og HM. „Þýski markaðurinn og þýska úrvalsdeildin eru afar mikilvæg í handboltaheiminum og þessi markaður verður að vera til staðar á HM. Og það kemur meira til en bara peningar því handboltinn hefur verið að berjast fyrir tilverurétti sínum á Ólympíuleikum. Það verður því að viðhalda áhuga stuðningsmanna, styrktaraðila og sjónvarpstöðva því annars á íþróttin það á hættu að missa tilverurétt sinn á Ólympíuleikum,“ bendir hann á.
Bruchmann telur þó að Ísland ætti að leita allra leiða til að láta reyna á ákvörðun IHF. „Forráðamenn Hamburg ákváðu að kæra þegar liðið fékk ekki keppnisleyfi í þýsku úrvalsdeildinni og það gekk eftir. Ég myndi því ráðleggja Íslandi að kanna alla möguleika, þó ekki nema til að fullvissa sig um að allar mögulegar leiðir voru reyndar. Við verðum með nítján lið í úrvalsdeildinni í Þýskalandi í vetur – kannski verða 30 lið á HM í Katar en ekki 24. Maður veit aldrei,“ sagði Bruchmann að lokum.
Tengdar fréttir

Einar: Við munum leita allra leiða
Framkvæmdarstjóri HSÍ er afar undrandi á þeirri ákvörðun að gefa Þýskalandi þátttökurétt á HM í Katar.

Íþróttaljós: Reglugerðin sem enginn vissi af
Alþjóðahandknattleikssambandið breytti reglunum um hvaða þjóð kæmi til vara ef einhver skyldi ekki fá keppnisleyfi, en lét engan vita. Framkvæmdastjóri evrópska sambandsins lætur ritarann svara spurningum fyrir sig.

Ísland ekki á HM þó svo Ástralía hafi hætt við
Þýskaland mun óvænt taka þátt á HM í Katar eftir að Ástralía dró sig úr keppni. Ísland tekur ekki sætið þó svo Ísland sé fyrsta varaþjóð frá Evrópu.

Laug EHF að handboltaforystu Íslands?
Framkvæmdastjórn Alþjóðahandknattleikssambandsins leggur til breytingar í þröngum fimm manna hring sem nánast undantekningalaust eru samþykktar. Aum svör Evrópska handknattleikssambandsins til HSÍ.

Formaður HSÍ: Vitum ekki um neinar reglubreytingar
Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, segir að ákvörðun IHF um að hleypa Þýskalandi á HM hafi komið sér á óvart.

Landsliðsþjálfari Ástralíu brjálaður
Landsliðsþjálfari Ástrala í handbolta, Daninn Jan Ottosen, vandar forystu alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, ekki kveðjurnar.

Formaður HSÍ: Fengum ekki fullnægjandi svör
Evrópska handknattleikssambandið bendir á Alþjóðasambandið og svarar engu.

EHF: Vissum ekki af þessu fyrr en eftir fundinn í gær
Evrópska handknattleikssambandið mun skoða ákvörðun Alþjóðasambandsins nánar.