Vodafone undirbýr skráningu í Kauphöllina 9. júlí 2012 10:47 Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone
Vodafone á Íslandi hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka til að vinna að undirbúningi skráningar Vodafone í Kauphöllina á Íslandi. Í tilkynningu segir að í tengslum við fyrirhugaða skráningu er gert ráð fyrir að fram fari almennt hlutafjárútboð þar sem fjárfestum og almenningi gefst kostur á að skrá sig fyrir hlutum í félaginu. Markmiðið með skráningunni er að tryggja almenna og góða dreifingu á eignarhaldi félagsins og gefa fjárfestum kost á að fjárfesta í öflugu félagi á sviði fjarskipta. Samhliða hefur verið samið um að Íslandsbanki annist sölu á þeim bréfum Framtakssjóðs Íslands (FSÍ) sem seld verða í útboðinu, en sjóðurinn er aðaleigandi Vodafone í dag. Leitað var tilboða meðal þeirra aðila hér á landi sem veita ráðgjöf um skráningu á hlutabréfamarkað og var í kjölfarið ákveðið að ganga til viðræðna við Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka um að taka að sér umsjón með skráningunni. Sérfræðingar Fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka hafa langa reynslu af því að vinna með fyrirtækjum við hlutafjárútboð og skráningar, bæði hér heima og erlendis. Stefnt er að skráningu félagsins fyrir árslok 2012.„Við erum afar ánægð að ganga til samstarfs við Íslandsbanka um skráningu félagsins. Framundan eru spennandi tímar fyrir Vodafone. Fyrirtækið er vel í stakk búið til skráningar á hlutabréfamarkað og tímapunkturinn er réttur til að fá fleiri fjárfesta að fyrirtækinu. Stjórnendur og starfsfólk Vodafone hlakka til að takast á við þetta verkefni. Skráningu á hlutabréfamarkað fylgir mikil ábyrgð en ég er sannfærður um að þetta skref er rökrétt fyrir áframhaldandi vöxt og uppbyggingu Vodafone á Íslandi," segir Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone í tilkynningunni.
Mest lesið Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira