Leiðréttu leiðréttinguna - Sigmundur segir ætihvönnina virka 9. júlí 2012 17:43 Sigmundur Guðbjarnason, fyrrverandi háskólarektor, segir ætihvönnina virka gegn tíðum þvaglátum. „
Þetta kom okkur á óvart, við fengum ágætiskynningu á Saga Pro á fimmtudagskvöldinu á RÚV," segir Sigmundur Guðbjarnason, fyrrverandi háskólarektor, sem stendur fyrir rannsóknum á Íslenska náttúrulyfinu SagaPro, sem er framleitt úr ætihvönn, í viðtali við Reykjavík síðdegis í dag. Fréttastofa RÚV greindi frá því á fimmtudaginn að ætihvönnin virkar gegn tíðum þvaglátum en Sigmundur segir að fréttin þá hafi verið einstaklega vel unnin. Þannig var greint frá því að það væri Saga Medica sem þróaði lyfið sem kom fyrst á markað fyrir sjö árum. Fljótlega kom í ljós að það hafði góð áhrif á þá sem áttu við tíð þvaglát að stríða. Rannsóknir hefðu nú staðfest það. Það kom hinsvegar Sigmundi töluvert á óvart þegar daginn eftir birtist leiðrétting á fyrri fréttinni. Þá var greint frá því í fréttum RÚV að frásögnin væri ónákvæm, því rannsóknin sýndi fyrst og fremst að lyfið væri hættulaust. Sigmundur segir að þetta hafi aldrei verið borið undir hann, heldur hefði einhver hringt inn á fréttastofu og viljað fá þetta leiðrétt. „En svo var þetta aftur leiðrétt daginn eftir," segir Sigmundur en það var þá þriðji dagurinn sem fjallað var um rannsóknina. Sigmundur segir að það sé ljóst að lyfið virkar á þann hóp sem hafi ofvirka blöðru, lyfið jók semsagt ummál blöðrunnar sem dró úr tíðum þvaglátum yfir nóttina. Sigmundur segir að margir úr læknastéttinni hafi hjálpað þeim og stutt þessar rannsóknir, „en við eigum líka andstæðinga í þeim hópi," bætti hann við. Sigmundur segist hafa horft á athyglisverða leikna heimildarmynd á RÚV í gærkvöldi, sem fjallaði um franska efnafræðinginn Louis Pasteur. Sá lagði grunninn að gerilsneyðingu og gerði einnig mikilvægar rannsóknir á sviði örverufræða í tengslum við sjúkdóma sem þær valda. Sá var mjög umdeildur. Sigmundur segir það aldrei auðvelt að vera brautryðjandi. Hægt er að hlusta á athyglisvert viðtal við Sigmund, þar sem hann útskýrir einnig rannsóknina sem gerð var og niðurstöðurnar byggja á, í Reykjavík síðdegis.
Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Fleiri fréttir „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Sjá meira