Kaupþing einn af helstu fjármögnunaraðilum Saxo 21. febrúar 2008 12:15 „
Hann er annaðhvort fáfróður eða heimskur um Kaupþing, greinandi Saxo sem heldur því fram að Kaupþing og hinir íslensku bankarnir séu að verða gjaldþrota," segir Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings. Samkvæmt heimildum Markaðarins er Kaupþing einn af helstu fjármögnunaraðilum Saxo en Sigurður vildi þó ekki tjá sig eða staðfesta það. Sigurður segir viðkomandi greiningaraðila augljóslega ekkert vita um Kaupþing og ekkert um efnahag landsins enda líkir hann honum við efnahag Simbabve þar sem 80 prósent þjóðarinnar býr við fátækt. Það eitt ætti að segja blaðamönnum að athuga heimildir sínar betur, það taki jú ekki nema mínútu að ganga í skugga um að þetta sé þvæla, segir Sigurður og bætir við að ef lítil fjárfestingafélög hér á landi færu að skrifa um Danske Bank myndu menn athuga hvaða félög þetta væru áður en menn færu með það í fréttir. Hvers vegna greinandinn komst að þessari niðurstöðu, segist Sigurður ómögulega geta skiljað. Þegar Sigurður er spurður að því hvort umfjöllunin hafi skaðað Kaupþing segir hann að það sé aðallega þreytandi að þurfa að svara fyrir svona þvælu hvað eftir annað. Það sé nú svo að þó svo Moody´s komi til með að lækka einkunnir bankanna úr AAA niður í 2A eða jafnvel 1A, sé það samt sem áður frábær einkunn. Hann minnir á að Kaupþing sé með 13 milljarða í lausafé, aðeins 3 milljarða þurfi að endurfjármagna og að eiginfjárhlutfall bankans sé upp á 11,8%. Því til viðbótar var bankinn með ávöxtun á eigið fé upp á 23% og að 2008 líti út fyrir að verða prýðilegt ár, þó vissulega verði það krefjandi. Samkvæmt heimildum Markaðarins er Kaupþing einn af helstu fjármögnunaraðilum Saxo og yfirmenn bankans því án efa ekki glaðir í dag með sinn mann.
Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira