My life fær misjafna dóma 21. júní 2004 00:01
Þreytandi, illa skrifuð, sjálfhverf, sérhlífin... með þessum orðum lýsir bókmenntagagnrýnandi New York Times ævisögu Bills Clintons, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Bókin kemur út á morgun, en er þegar orðin metsölubók og bæði umtöluð og umdeild. Bókmenntagagnrýnandi New York Times fer hörðum orðum um ritsmíð Clintons í dag, og segir hana langdregna og þreytandi, illa skrifaða, sjálfhverfa og sérhlífna og hreinlega leiðinlega. Rétt eins og forsetatíð Clintons hafi sýnt, hafi hann margt til brunns að bera en sé of agalaus og fullur af sjálfum sér til að beita þeim hæfileikum til að skrifa sæmilega bók. Aðrir gagnrýnendur fara mildar í gagnrýni sína og hrósa Clinton fyrir grípandi skrif um æskuárin, sem mótuðu persónuleika hans. Um miðbik bókarinnar hefst umfjöllun um forsetatíðina og þá dregur úr spennunni. Heldur þurr upptalning er megin niðurstaða gagnrýnenda, sem undrast að Clinton skuli ekki nota tækifærið og gera hreinna fyrir dyrum en raun ber vitni. Hann neitar til að mynda að hafa áreitt Paulu Jones kynferðislega, en segir ekki hvað gerðist kvöldið sem þau voru saman á hótelherbergi. Hann segir Whitewaterhneykslið ekki hafa verið stórmál, en útskýrir ekki hver hlutur þeirra Hillary var í málinu. Hann fjallar einnig um Monicu Lewinsky, og þegar hann viðurkenndi loks fyrir eiginkonu sinni og dóttur að hafa logið til um sambandið. Eftir það segist hann hafa sofið á sófanum í Hvíta húsinu í tvo mánuði. Clinton er nú á fleygiferð við að kynna bókina og veitti meðal annars Dan Rather viðtal í sextíu mínútum, sem sýndar voru vestra í gærkvöldi. Viðmælandi Clintons hjá BBC, David Dimbleby, tók forsetann fyrrverandi engum vettlingatökum og spurði hann ítrekað um samband hans við Monicu Lewinsky. Clinton missti stjórn án sér, þrumaði öskuillur yfir Dimbleby og kvartaði sáran undan óréttlátri og miskunnarlausri meðferð fjölmiðla.
Erlent Fréttir Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fleiri fréttir Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Sjá meira