Erlent

Þrír menn ákærðir vegna slyssins

Tyrknesk yfirvöld hafa ákært þrjá menn vegna lestarslyssins sem varð 37 manns að bana á fimmtudaginn. Mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa valdið dauða fleiri en eins manns með því að sýna vítavert kæruleysi. Einn þremenninganna sem ákærðir voru í dag er yfirmaður á sviði lestarsamgangna í Tyrklandi en hinir tveir eru lestarstjórar. Þeir eru ákærðir fyrir að hafa sýnt vanrækslu og ábyrgðarleysi sem hafi valdið dauðsföllum. Lögmaður mannanna þriggja telur hins vegar að verið sé að gera skjólstæðinga sína að blórabögglum og sSlysið skrifist alfarið á reikning lestarfyrirtækisins, TCDD, en ekki starfsmenn lestarinnar. Þremenningarnir segja mistök í skipulagi vera orsök slyssins en yfirmenn lestarfyrirtækisins vilja hins vegar rekja slysið til bilunar í vél. Lestin sem fór út af teinunum var vígð fyrir aðeins nokkrum vikum og slysið hefur vakið upp harða gagnrýni á tyrknesk yfirvöld. Gagnrýnendur segja nýju lestina hafa verið komið í notkun allt of fljótt og að yfirvöld hafi virt að vettugi aðvaranir um að lestarteinar landsins væru of gamlir til þess að þola hraða nýju lestarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×