Mikið undir hjá Hatara í Tel Aviv í dag Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. maí 2019 09:00 Matthías Tryggvi Haraldsson, söngvari Hatara, teygir á fyrir fyrstu æfinguna á sunnudaginn. Andres Putting
Það dregur til tíðinda í dag þegar Hatari stígur á svið á seinni sviðsæfingu sinni fyrir undanúrslitin á þriðjudagskvöld. Alls keppir 41 þjóð í Eurovision en sex þeirra, stóru þjóðirnar svokölluðu, eiga sæti víst úrslitakvöldið 18. maí. Aðrar þjóðir hafa lokið einni æfingu á sviðinu og fyrstu fimmtán þjóðirnar á svið á þriðjudagskvöldið æfa í Expo Tel Aviv í dag, Ísland á öðrum tímanum að íslenskum tíma. Skellt var í lás í keppnishöllinni í gær þar sem Ísraelar minntust fallinna hermanna og almennra borgara sem fallið hafa í árásum. Dyrnar verða galopnaðar í dag þegar fyrstu þjóðirnar fimmtán mæta hver á fætur annarri og reyna að fullnýta tímann á sviði. Um er að ræða hálftíma þar sem reiknað er með því að hver þjóð nái að renna í gegnum lagið sitt þrisvar sinnum. Um leið er gengið úr skugga um að sviðsmennirnir séu með allt á hreinu en sekúndur skipta máli þegar kemur að því að færa hluti inn og útaf sviði á þeim sekúndum sem líða á milli laga. Þá þarf að stilla af allar myndavélar, ljós og íslenski hópurinn fær sitt seinna og síðasta tækifæri til að hafa áhrif á útlitið, tilfinningu og hljóð áður en kemur að dómararennslinu og svo undanúrslitakvöldinu á þriðjudag.Að neðan má sjá samantekt frá fyrstu æfingum þjóðanna í Tel Aviv.Enn taldar 4% líkur á íslenskum sigri Hatari er í áttunda sæti á lista Eurovision World þar sem teknar eru saman líkur á því að þjóðirnar vinni keppnina. Hollendingurinn Duncan Laurence er talinn langlíklegastur til þess að standa uppi sem sigurvegari með lag sitt Arcade. Líkurnar eru taldar 25% en Eurovision World tekur saman líkur ólíkra veðbanka og vinnur líkur á sigri út frá þeim. Fullyrt er á vef Eurovision að æfing Laurence hafi gengið frábærlega, frá upphafi til enda. Dæmi hver fyrir sig.Næstur kemur Rússinn Segey Lazarev með lagið Scream en líkurnar á rússneskum sigri eru taldar vera 12%. Eurovision-unnendur muna eflaust margir eftir Lazarev frá því í Svíþjóð 2016 þar sem hann náði 3. sæti og vann símakosninguna. Ítalinn Mahmood með lagið Soldi er talinn þriðji líklegastur þessa stundina til að hrósa sigri. Líkurnar eru taldar 10%. Þar á eftir koma Aserbaíjdan, Svíþjóð og Sviss áður en Malta og Ísland koma í 7. og 8. sæti með 4% líkur á sigri. Líkurnar á íslenskum sigri voru 5% eftir fyrri æfinguna en hafa minnkað síðan. Allar líkur eru taldar á því að íslenska liðið rjúki upp úr riðli sínum á þriðjudaginn. Sautján þjóðir eru í fyrri undanúrslitariðlinum en átján í þeim seinni á fimmtudagskvöldinu. Tíu þjóðir komast upp úr hvorum riðli og keppa í úrslitum ásamt stóru þjóðunum sex; Ísrael, Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Spánn og Bretland.Mat veðbanka á stöðunni að kvöldi 8. maí.EurovisionWorldÍ baráttu við stjórnandann Blaðamannafundur Hatara fer svo fram í keppnishöllinni seinni partinn á morgun, um 45 mínútum eftir að æfingunni líkur. Fyrsti blaðamannafundurinn var um margt áhugaverður þar sem stjórnandinn reyndi að hafa hemil á Hataramönnum og stýra umræðunni en hljómsveitin gekk ákveðið fram að fá að svara þeim spurningum sem bárust. Þótt fundurinn hafi vakið mikla athygli hér á landi, en fréttir af fundinum voru mikið lesnar á vefmiðlum, virðist áhugi annarra þjóða af skornum skammti. Sögðust söngvararnir tveir, þeir Matthías Tryggvi Haraldsson og Klemens Hannigan, að æfingin hefði gengið mjög vel fyrir sig. Kom fram í máli Matthíasar að hljómsveitin hygðist vissulega nýta dagskrárvaldið til að halda uppi gagnrýninni umræðu í tengslum við það samhengi sem keppnin er haldin í. Á sama tíma væru þau einnig staðráðin í því að taka þátt í keppninni og hlýða reglunum á hinu eiginlega sviði eins og allir aðrir. Minntu þeir einnig á áskorun sína til Benjamin Nethanyahu, forsætisráðherra Ísraels, að keppa við þá í íslenskri glímu. Voru Hatarar spurðir út í sína skoðun á hinu eldfima ástandi á Gaza-ströndinni. „Við viljum að sjálfsögðu sjá hernáminu ljúka eins fljótt og auðið er, og við bindum vonir við að friði verði komið á. Við erum vongóð,“ náði Matthías Tryggvi að segja í lok fundarins. Spennandi verður að sjá hvort liðsmenn Hatara fái áhugaverðar spurningar á blaðamannafundinum á morgun sem reiknað er með að taki um 20 mínútur. Í framhaldinu mun sveitin veita einstökum miðlum viðtöl.Fjögur mögur ár Óhætt er að segja að eftirvæntingin á Íslandi fyrir Eurovision hafi sjaldan verið meiri. Gengi Íslands undanfarin fjögur ár hefur verið skelfilegt. María Ólafs, Greta Salóme, Svala og Ari Ólafsson komust ekki upp úr undanúrslitariðlunum árin 2015 til 2018. Atriði Íslands í ár, Hatrið mun sigra, er ekki aðeins öðruvísi og djarft heldur einnig umdeilt. Sumir foreldrar súpa kveljur þegar þeir heyra börn sín syngja að Hatrið muni sigra. Liðsmenn Hatara eru iðullega í karakter í viðtölum sínum og stundum erfitt að átta sig á því hvað sé grín og hvað sé alvara.Páll Óskar Hjálmtýsson er mótfallinn því að Ísland taki þátt í Eurovision.Vísir/VilhelmEkki nóg með það heldur þykir afar umdeilt til að byrja með að Ísland taki þátt í ljósi hatrammra deilna Ísraela og Palestínumanna sem ekkert bendir til að finnist lausn á í náinni framtíð. Meðal þeirra sem hafa mótmælt þátttöku Íslands er Páll Óskar Hjálmtýsson, Eurovision goðsögn, sem hefur blásið af árlegt Pallaball á Eurovision-kvöldinu, kvöldi sem ljóst er að Páll Óskar hefur haft miklar tekjur af undanfarin ár. Engin þjóð hefur dregið sig úr keppni af pólitískum ástæðum. Búlgarir ákváðu að taka sér pásu í ár, sem fullt af fordæmum er fyrir, auk þess sem Úkraína dró sig úr keppni vegna skandals í undankeppninni þar í landi. Æfingin í dag skiptir miklu máli upp á útkomuna enda verður litlu sem engu breytt í framhaldinu. Takist æfingin vel og blaðamannafundurinn sömuleiðis er aldrei að vita nema Ísland hækki sig hjá veðbönkunum. Sigur í Eurovision er líklegast langsóttur draumur en svo virðist sem mikið þurfi að ganga á til þess að Ísland eigi ekki loksins fulltrúa á úrslitakvöldi keppninnar, laugardagskvöldið 18. maí. Sem gerir vinsælasta partýkvöld landans miklu skemmtilegra.Uppfært klukkan 16. Hér að neðan má sjá stutt myndband af æfingunni sem aðstandendur Eurovision sendu frá sér í lok dags.
Eurovision Tengdar fréttir MMR: Íslendingar bjartsýnir á gott gengi Hatara Miðflokksmenn og Framsóknarmenn hins vegar líklegastir til að vera svartsýnir í garð framlag Íslands. 8. maí 2019 14:29 Jon Ola Sand býður Elon Musk á Eurovision Elon Musk, forstjóri bílaframleiðandans Tesla, hefur mikinn áhuga á að mæta á Eurovision í Tel Aviv. 8. maí 2019 10:16 Eurovision-sviðið í Ísrael minna en Hatarar segjast hafa búist við Sviðið í Expo-höllinni í Tel Avív var minna en Hatari bjóst við eftir fyrstu æfingu sem fram fór í fyrradag. 7. maí 2019 06:15 Mest lesið Forsetaáskorunin: Höfuðborgin ætti að vera í góða veðrinu fyrir norðan eða austan Lífið Forðast drama eins og heitan eldinn Lífið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Elín Metta og Sigurður eiga von á barni Lífið Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar Lífið „Þetta voru flottustu tónleikar sem haldnir hafa verið á Íslandi“ Lífið Steldu stílnum af konunum í forsetaframboði Tíska og hönnun Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Tíska og hönnun Fyrsti takóstaðurinn sem fær Michelin-stjörnu Matur Fleiri fréttir Forsetaáskorunin: Höfuðborgin ætti að vera í góða veðrinu fyrir norðan eða austan Elín Metta og Sigurður eiga von á barni Forðast drama eins og heitan eldinn Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar „Þetta voru flottustu tónleikar sem haldnir hafa verið á Íslandi“ Krakkatían: Frambjóðendur, rapparar og ofurhetjur Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Andri og Erla selja í Seljunum „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Hafa ekki sést saman í sjö vikur Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Segir sjálfsvígin sárust Elín Hall í rándýrum kjól á rauða dreglinum Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Horfir vonandi niður af himnum og sér börnin blómstra á bóndabænum Smekklegt einbýli í Fossvogi á 230 milljónir Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“ Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku Föruneyti Pingsins: Enn barist í Baldurs Gate Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Sjá meira
MMR: Íslendingar bjartsýnir á gott gengi Hatara Miðflokksmenn og Framsóknarmenn hins vegar líklegastir til að vera svartsýnir í garð framlag Íslands. 8. maí 2019 14:29
Jon Ola Sand býður Elon Musk á Eurovision Elon Musk, forstjóri bílaframleiðandans Tesla, hefur mikinn áhuga á að mæta á Eurovision í Tel Aviv. 8. maí 2019 10:16
Eurovision-sviðið í Ísrael minna en Hatarar segjast hafa búist við Sviðið í Expo-höllinni í Tel Avív var minna en Hatari bjóst við eftir fyrstu æfingu sem fram fór í fyrradag. 7. maí 2019 06:15