Lína Birgitta og Sætar Syndir brutu lög með umfjöllun um vöru fyrirtækisins Hólmfríður Gísladóttir skrifar 23. desember 2020 11:00 Málið snérist um það hvort umfjöllunin, sem Neytendastofa segir „auglýsingu“, hafi verið nægilega merkt sem slík. Vísir/Vilhelm Neytendastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sætar Syndir ehf. og áhrifavaldurinn Lína Birgitta Sigurðardóttir hafi gerst brotleg við lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.
Málið snýst um myndbirtingar af „High tea“ pakka Sætra Synda, sem inniheldur margs konar bakkelsi og er hugsaður fyrir viðburði á borð við saumaklúbba og gæsanir. Neytendastofu bárust ábendingar um að umrædd vara væri auglýst á Instagram reikningi Línu Birgittu, án þess að getið væri um að um auglýsingu eða kynningu væri að ræða. Í svörum við erindi frá stofnuninni greindi Lína Birgitta frá því að hún og eigandi Sætra Synda væru vinkonur og að eigandinn hefði beðið hana um að prófa nýja vöru og veita álit. Það hefði verið hún sjálf sem ákvað að birta vöruna á Instagram en hún legði það í vana sinn að merkja allt hjá sér sem samstarf. Sætar Syndir báru því við að hafa látið Línu Birgittu fá vöruna til reynslu þegar varan var enn á prufustigi. Fyrirtækið hefði ekki haft nein afskipti af umfjöllun um vöruna og veitt Línu Birgittu fulla stjórn á því hvernig umfjöllun var háttað. Neytendum eigi alltaf að vera ljóst þegar um auglýsingu er að ræða Málið snérist um það hvort umfjöllunin, sem Neytendastofa segir „auglýsingu“, hafi verið nægilega merkt sem slík. Vísað er til ákvæðis sem kveður á um að neytendum eigi ávallt að vera það ljóst þegar um auglýsingu er að ræða. Umræddur „High tea“ pakki.Sætar Syndir Í niðurstöðu Neytendastofu segir meðal annars: „Samkvæmt gögnum málsins er um að ræða færslur í svokölluðum „sögum“ (e. Stories) og myndbirtingar á Instagram reikningi. Voru alls um að ræða átta færslur í „sögum“ Línu Birgittu, bæði myndir og myndbönd, sem innihéldu umfjöllun um umrædda vöru. Á myndunum mátti sjá allskyns vörur frá félaginu með eða án texta. Þar kom meðal annars fram: 4 „Ekkert smá girnilegt ♥“ og „Fullkomið ef maður er að fá gesti til sín♥“. Í öðrum færslum er Instagram reikningur Sætra Synda ýmist tengdur við söguna eða ekki. Í fjórðu „sögunni“ er fyrst minnst á að um gjöf hafi verið að ræða með myllumerkingu #gjöf, birt með smáu hvítu letri vinstra megin í færslunni. Þá birti Lína Birgitta færslu með myndum af vörunni á Instagram reikningi sínum, ýmist myndir af vörunni sjálfri eða öðrum að njóta vörunnar. Sú færsla var hvergi merkt sem auglýsing eða gefið til kynna með öðrum skýrum hætti að um kostaða umfjöllun hafi verið að ræða með öðrum hætti en að tengja Instagram reikning Sætra Synda við fyrstu myndina í færslunni.“ Persónuleg meðmæli nýti traust og trúgirni í ríkari mæli Samkvæmt Neytendastofu var um að ræða markaðssetningu sem fól í sér að Lína Birgitta fékk endurgjald, í formi „High tea“ pakka, gegn umfjöllun um vöruna á samfélagsmiðlum. Í úrskurðinum segir meðal annars að auglýsingar í formi persónulegra meðmæla nýti traust og trúgirni í ríkari mæli en önnur hefðbundin form auglýsinga og markaðssetningar. Því verði að gera ríkari kröfur til kynningar af hálfu aðila sem nota slíka miðla í auglýsingaherferðir. „Neytendastofa telur að myllumerki með nafni vöru, þjónustu eða fyrirtækis eða hlekkur á umrædda vöru eða fyrirtæki nægi ekki til þess að auðkenna auglýsingar í stöðuuppfærslum á samfélagsmiðlum. Þá hefur Neytendastofa litið svo á að neytandi verði að geta áttað sig á því að um markaðssetningu sé að ræða strax í upphafi umfjöllunar. Merkingar aftarlega í umfjöllun uppfylla ekki það skilyrði, enda þyrftu neytendur þá að leita í umfjölluninni til að geta áttað sig á því að um markaðssetningu sé að ræða.“ Línu Birgittu og Sætum Syndum var bannað að auglýsa með umræddum hætti en verði aðilar ekki við banninu mega þeir gera ráð fyrir sektum.
Verslun Samfélagsmiðlar Auglýsinga- og markaðsmál Neytendur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti innlent Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Samstarf Fleiri fréttir Sekta Árvakur um 1,5 milljónir króna vegna fjölda dulinna auglýsinga Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Vonast til að koma dánarbúinu í góðar hendur Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkingar Allir með fjölnota innkaupapoka fá frítt í strætó á morgun Stöð 2+ lækkar verð Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Villta vestrið í gjaldtöku bílastæða FÍB vill að Neytendastofa grípi til aðgerða vegna ófremdarástands í bílastæðamálum Mamman ítrekað læst úti en fær engar skaðabætur Flúðu dónalegan fararstjóra og fá ekki krónu Laumuðu fötunum með barnabílstólunum og fá lægri bætur Hótelið alls ekki sex hundruð metra frá ströndinni Athafnaleysi Katrínar geti skaðað hagsmuni landsmanna Sjá meira