Aðgát skal höfð í nærveru öfga: Eyðing byggðar í þágu landverndar Ágústa Ágústsdóttir skrifar 3. desember 2020 14:01 Hálendisþjóðgarður hljómar fagurt og göfugt. En þegar rýnt er inn fyrir skráp þess kemur í ljós tvíeggja blað. Verndun íslensks lands og náttúru er nauðsynleg sem ég held að flestir geti verið sammála um. En forræðishyggja í sinni verstu mynd er það andstyggilegasta sem til er. Þjóðgarð mætti útleggja sem garð þjóðar. Garð þeirra sem landið byggja. Hálendið okkar er í sameiginlegri umsjá okkar allra nú þegar. Sveitastjórnir, landeigendur, bændur o.s.frv. sem hafa verið ötulir talsmenn og gerendur í verndun og uppgræðslu þess í áratugi og ríkið hefur starfað þar á meðal í nafni Landgræðslunnar t.d. Allt þetta starf hefur skilað betur grónu landi því allir aðilar skilja að enginn lifir af burtfoknu landi En hvað hefur þá skyndilega breyst ? Hvers vegna þarf allt forræði að færast yfir á eina hendi ? Þjóðgarður laðar jú fleiri ferðamenn að og gefur góða ímynd út á við. En falleg ímynd farðar oft yfir gallagripina. Þurfum við virkilega á því að halda að inn á hálendi okkar hrúgist hópar af erlendum ferðamönnum sem hafa enga þekkingu eða kunnáttu til að ferðast um það ? Það land sem nú þegar heyrir undir þjóðgarða er undirmannað og undirfjármagnað (nema þótt furðulegt sé, í nefndum, ráðum, stofnunum og ráðuneytum) á allan hátt svo land og náttúruperlur víða liggja undir skemmdum vegna ágangs ferðamanna. Innviðir, eftirlit og stýring á stöðunum sjálfum er í algjörum molum og ekki hægt að gera neitt vegna fjárskorts. Þó þreytast menn seint á því að reyna sölsa undir sig jarðir til þess eins að leggja í eyði. Því er algjör rökleysa að halda því fram að hálendinu sé borgið með því að breyta því í þjóðgarð. Stöðugildum í skrifstofurýmum víðs fjarri náttúrunni myndi á hinn bóginn fjölga hratt. Allir vita að byggð þrífst ekki á miðhálendinu á sama hátt og við vitum að uppgræðsla má sín lítils í samkeppni við náttúru- og veðraöfl sem þar geysa. Náttúran þar er hins vegar viðkvæm og hana þarf að vernda sem mest í þeirri mynd sem hún er. Það myndum við best gera með því að takmarka og stýra fjölda þeirra sem þangað fara. Það eitt að ferðamenn sem aldrei hafa keyrt beinskiptan bíl, aldrei keyrt á malarvegi, aldrei þverað ár og jafnvel lítið sem ekkert ekið bíl yfir höfuð, skuli geta valsað um hálendið eins og ekkert sé sjálfsagðara er algjörlega galin staðreynd. Það væri góð vísbending um að stjórnvöld væru með einhverja grunnskynsemi ef t.d. yrði lögfest að allir þyrftu að sækja um sérstakt leyfi til að meiga aka um hálendið á til þess gerðum breyttu bifreiðum. Slík leyfi eru algeng víða um heim hvort sem um ræðir ákveðið fjall eða svæði sem ferðast á um. Þessi leyfi gæfu peninga í kassann og yrðu um leið atvinnuskapandi fyrir sérhæfð ferðaþjónustufyrirtæki sem starfa myndu við hálendisferðir. Þannig yrði til hringrás sem allir gætu grætt á. Hálendið yrði eftirsótt, en á forsendum náttúrunnar í stað stefnulauss massatúrisma með ekkert utanumhald og eingöngu slæmar afleiðingar fyrir alla. Innan þjóðgarðs þrífst engin sjálfstæð starfssemi því allt regluverk þar kæfir allt sem teygir sig eftir súrefni. Stakkur þeirrar stofnunar er svo þröngur að allir gefast upp á að reyna klæða sig í hann. Endalausu nefndirnar, ráðin, samþykktirnar, mismunandi stofnanir innan regluverksins eru dauðans alvara í orðsins fyllstu merkingu. Þeir sem eiga jarðir upp við þjóðgarðsmörk þekkja þetta sérstaklega, því öll uppbygging svo nálægt þjóðgarði er algjörlega undir hæl þess. Allt sem þú gerir eða villt gera er þeirra samþykki háð svo skrýtið sem það nú er. Ef markmið hálendisþjóðgarðs sé m.a. ætlað að koma í veg fyrir frekari virkjanir mætti spyrja ráðamenn að því hvar þeir ætli sér að fá allt það rafmagn sem þarf til að knýja allan rafmagnsflota landsins sem íbúar þessa lands eru nú „hvattir“ til að kaupa sér með tilkomu endalausra grænna refsiskatta. Skömm sé þeim sem keyra á jarðefnaeldsneyti! Höfundur er verktaki og sauðfjár- og ferðaþjónustubóndi á Norðausturlandi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Þjóðgarðar Umhverfismál Byggðamál Vatnajökulsþjóðgarður Hálendisþjóðgarður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjöldi fyrirtækja hætta með Rapyd Oddný Björg Rafnsdóttir Skoðun Bréf frá móður Berglind Fríða Viggósdóttir Skoðun Forsetaframbjóðendur undir áhrifum Kremlverja? Bjarni Már Magnússon Skoðun Fjallkonan nýja, hún Katrín Þorvaldur Logason Skoðun Njótum reynslu Katrínar Valgerður Bjarnadóttir Skoðun Vill ekki lengur íslenzkan her? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Forseti Íslands, Baldur Þórhallsson Friðrik Erlingsson Skoðun Hafa íslensk fjarskiptafélög málað sig út í horn? Aron Heiðar Steinsson Skoðun Á Ísland framtíð í NATO? Hilmar Þór Hilmarsson Skoðun 30% kaupmáttaraukning með evru Guðmundur Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sagan sem verður að segja Drífa Snædal skrifar Skoðun Nýsköpun innviða Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi fyrirtækja hætta með Rapyd Oddný Björg Rafnsdóttir skrifar Skoðun Forsetaframbjóðendur undir áhrifum Kremlverja? Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Bréf frá móður Berglind Fríða Viggósdóttir skrifar Skoðun Vill ekki lengur íslenzkan her? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hafa íslensk fjarskiptafélög málað sig út í horn? Aron Heiðar Steinsson skrifar Skoðun Á Ísland framtíð í NATO? Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Fjallkonan nýja, hún Katrín Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Heilsa íslenskrar þjóðar, samofin framþróun í læknisfræði á Íslandi Theódór Skúli Sigurðsson skrifar Skoðun Njótum reynslu Katrínar Valgerður Bjarnadóttir skrifar Skoðun Katrínu á Bessastaði Brynja Þorbjörnsdóttir skrifar Skoðun Eru stjórnvöld að virða réttindi barna á flótta? Hópur fólks í ungmennaráði UNICEF á Íslandi skrifar Skoðun Forseti Íslands, Baldur Þórhallsson Friðrik Erlingsson skrifar Skoðun Algeng mistök við fasteignakaup og hvernig þú forðast þau Kristín Ósk Þórðardóttir skrifar Skoðun Er ungum mönnum sama um sjófólk? Kjartan Sveinn Guðmundsson skrifar Skoðun Þörfin fyrir heimilislækna Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Um lýðræði — Þrjár spurningar til forsetaframbjóðenda Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun 30% kaupmáttaraukning með evru Guðmundur Ragnarsson skrifar Skoðun Halla Tómasdóttir yrði góður forseti Rannveig Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn má ekki fara á taugum Gísli Jökull Gíslason skrifar Skoðun „Brandarinn er búinn!“ María Heba Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Katrín kann sig Aðalheiður Björk Olgudóttir skrifar Skoðun Löggæsla er mikilvæg grunnþjónusta við fólkið í landinu Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Menntamorð Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Náttúruminjasafn Íslands má sinna sýningahaldi! Hilmar J. Malmquist skrifar Skoðun Hvers vegna þurfti að farga bókinni? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hjarta umhverfismála Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Hugsjónir og fræðimennska – einstakt veganesti Baldurs í embætti forseta Íslands Rannveig Traustadóttir skrifar Skoðun Ísland hástökkvari í málefnum hinsegin fólks Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heilsa íslenskrar þjóðar, samofin framþróun í læknisfræði á Íslandi Theódór Skúli Sigurðsson skrifar
Skoðun Eru stjórnvöld að virða réttindi barna á flótta? Hópur fólks í ungmennaráði UNICEF á Íslandi skrifar
Skoðun Algeng mistök við fasteignakaup og hvernig þú forðast þau Kristín Ósk Þórðardóttir skrifar
Skoðun Löggæsla er mikilvæg grunnþjónusta við fólkið í landinu Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Hugsjónir og fræðimennska – einstakt veganesti Baldurs í embætti forseta Íslands Rannveig Traustadóttir skrifar