Handbolti

Segir að eitthvað þurfi að láta undan: „Erum sett undir sama hatt og skokkhópar“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Róbert líst ekki á blikuna og segir að eitthvað þurfi að láta undan.
Róbert líst ekki á blikuna og segir að eitthvað þurfi að láta undan. STÖÐ 2

Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, segir að hljóðið í hreyfingunni sé ekki gott eftir tíðindi dagsins en þar var tilkynnt að æfinga- og keppnisleyfi verður áfram við lýði hér á Íslandi.

Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, segir að hljóðið í hreyfingunni sé ekki gott eftir tíðindi dagsins en þar var tilkynnt að æfinga- og keppnisleyfi verður áfram við lýði hér á Íslandi.

Róbert Geir ræddi við Guðjón Guðmundsson í Sportpakka kvöldsins en ljóst er að enginn handbolti verður spilaður á Íslandi út árið 2020 og sárafáar umferðir hafa farið fram síðan í mars.

„Þetta eru vissulega vonbrigði. Við vorum búin að fá að vonast til þess að æfa og gerðum ráð fyrir því að það yrðu einhverjar afléttingar, sér í lagi ef þú horfir til ungmennanna á framhaldsskólaaldri,“ sagði Róbert í samtali við Gaupa.

„Það verður að viðurkennast að þessi niðurstaða er veruleg vonbrigði og við sjáum ekki rökin fyrir því að afreks- og almennings íþróttir séu settir undir sama hatt. Því miður.“

Róbert segir að ramminn sem hægt verði að spila þrengist og þrengist.

„Það er algjör óvissa. Þessar reglur gilda í viku og við vonumst eftir að við fáum afléttingu í næstu viku og getum byrjað að æfa í desember. Þá gætum við vonast til þess að spila aftur í janúar en tímaramminn minnkar eftir því sem tíminn líður. Á endanum þarf eitthvað að láta undan.“

Klippa: Sportpakkinn - Róbert Geir Gíslason

„Við höfum notað desembermánuð til þess að teikna þetta aðeins upp og þurfum að bíða eftir niðurstöðu næstu viku hvað verður um mótahaldið okkar. Ramminn er orðinn verulega þungur og það er ljóst.“

Aðspurður um hvenær hægt verði að spila segir Róbert að því sé erfitt að svara því félögin þurfi sinn undirbúning.

„Það fer eftir því hvenær við fáum að byrja að æfa. Það er stóra spurningin í þessu öllu saman. Við höfum enn ekki fengið þau svör. Hvenær geta æfingar hafist? Við þurfum að æfa í rúmlega þrjár vikur til þess að byrja spila. Ef við fáum ekki að æfa fyrr en í byrjun janúar er ljóst að við spilum ekki fyrr en í lok janúar.“

„Það er ekki horft á sérstöðu afreksíþrótta og þær sóttvarnar ráðstafanir sem við höfum sett fram. Því er staðan eins og hún er. Við erum sett undir sama hatt og raunverulega skokkhópar og þeir sem hittast meðal almennings.“

Allt viðtalið við Róbert má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir

Formaður KKÍ vonsvikinn og reiður með tíðindi dagsins

Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, var ekkert sérstaklega ánægður með tíðindin sem bárust um hádegið, að gildandi samkomutakmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins verði áfram við lýði til 9. desember. Það þýðir að íslenskt íþróttafólk, fullorðnir og ungmenni, mega ekki æfa eða keppa eins og undanfarna tvo mánuði.

Æfinga- og keppnisbann enn við lýði

Gildandi sóttvarnareglur hafa verið framlengdar til 9. desember. Það þýðir m.a. áframhaldandi bann við æfingum og keppni hjá íslensku íþróttafólki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×