Innlent

Framsóknarmenn halda prófkjör í Kraganum

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Kjördæmisþing Kjördæmissambands Framsóknarmanna í Kraganum fór fram rafrænt um helgina.
Kjördæmisþing Kjördæmissambands Framsóknarmanna í Kraganum fór fram rafrænt um helgina. aðsend mynd

Framsóknarmenn í Suðvesturkjördæmi halda prófkjör til að velja á framboðslista fyrir alþingiskosningarnar sem fram fara á næsta ári. Kjördæmisþing Kjördæmissambands Framsóknarmanna í Kraganum samþykkti einróma á kjördæmisþingi sínu í gær að fram skuli fara lokað prófkjör þann 10. Apríl til að velja frambjóðendur í fimm efstu sætin á framboðslista flokksins. Leitað verður leiða til að valið geti farið fram með rafrænum hætti.

„Frambjóðendur geta þeir einir orðið sem eru félagar í Framsóknarflokknum og hafa kjörgengi til Alþingis, þ.m.t. þeir sem skilað hafa inn inngöngubeiðnum í Framsóknarflokkinn 30 dögum fyrir valdag og hafa náð 18 ára aldri á kjördag til Alþingis,” segir í tilkynningunni.

„Rétt til atkvæðagreiðslu eiga flokksbundnir framsóknarmenn sem eiga lögheimili í kjördæminu, þ.m.t. þeir sem skilað hafa inn inngöngubeiðnum í Framsóknarflokkinn 30 dögum fyrir valdag,” segir þar ennfremur en Helga Hauksdóttir var kjörin formaður kjörstjórnar.

Eygló Þóra Harðardóttir var kjörin nýr formaður KFSV en Hildur Helga Gísladóttir fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs.aðsend mynd

Þá var Eygló Þóra Harðardóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, kjörin nýr formaður KFSV en Hildur Helga Gísladóttir fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs eftir 14 ár í embætti formanns. Auk Eyglóar voru kjörin til setu í stjórn þau Guðmundur Birkir Þorkelsson, Margrét Sigmundsdóttir, Pétur Einir Þórðarson, Þorbjörg Sólbjartsdóttir, Guðmundur Einarsson og Úlfar Ármannsson og til vara þau Inga Þyrí Kjartansdóttir og Þórður Ingi Scheving Bjarnason.

Willum Þór Þórsson er þingmaður Framsóknarflokksins í Kraganum, fyrsti varaþingmaður flokksins í kjördæminu er Kristbjörg Þórisdóttir sálfræðingur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×