Skoðun

Kallað eftir sjálfbærnileiðtogum - helst í gær...

Gunnar Sveinn Magnússon skrifar

Vísindasamfélagið hefur varað við hrikalegum afleiðingum ef ekki verður gripið strax til róttækra aðgerða til að sporna við áframhaldandi hlýnun jarðar. Parísarsamkomulagið frá árinu 2015 kveður á um að stöðva skuli aukningu í útblæstri gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu og halda hlýnun jarðar innan við 2°C, þó helst innan við 1,5°C sé þess nokkur kostur. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst því yfir að við höfum aðeins tæp tíu ár áður en afleiðingarnar valda óafturkræfum breytingum á móður jörð.[1]

Ábyrgð á aðgerðum er okkar allra – stjórnvalda, stofnanna, sveitarfélaga, fyrirtækja, banka og fjárfesta, félagasamtaka, skóla, fjölmiða og einstaklinga. Helst hefði þurft að gera eitthvað róttækt strax í gær.

Þá hlýtur maður að spyrja sig – hvers vegna erum við ekki að gera meira, hví eru ekki fleiri að taka þátt? Það eru ansi margar „góðar“ afsakanir þarna úti. Sem dæmi; þetta kostar of mikið og það er ekki góður tími (Covid í gangi og svona), Ísland skiptir ekki máli í stóra samhenginu, ég fer í veiðiferð á sumrin og því hentar rafbíll mér ekki, Íslenskt veðurfar er hrikalegt og ég verð að taka mínar árlegu tvær til fjórar utanlandsferðir, eða það eru nú bara 97% vísindamanna sem halda þessu fram.[2] Reyndar er síðasta afsökunin arfaslök og sem betur fer eru ekki margir á þeim vagni í dag.

Ljóst er að komandi kynslóðir eiga ekki séns ef viðhorf fara ekki að breytast. Við sem samfélag þurfum að fara í allsherjar naflaskoðun. Við verðum að hætta að hugsa bara um eigin skammtímahag og muna að við erum hluti af einhverju stærra. Við þurfum öll að rísa upp og vera leiðtogar á okkar sviði, t.d. með því að:

·stjórnvöld og sveitarfélög setji sjálfbærni enn frekar í forgang við setningu laga og reglna, búi til hvata fyrir þá sem standa sig vel og beini opinberum innkaupum til sjálfbærra birgja

·fyrirtæki, bankar og fjárfestar setji sér afgerandi langtíma arðsemisstefnur og markmið útfrá sjálfbærni, tengi við grunnrekstur sinn og bakki það upp með fjármunum og gagnsærri skýrslugjöf

·fleiri félagasamtök og skólar innleiði heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í starfsemi sína og fræði félagsmenn og nemendur um áhrif loftslagsbreytinga og þörfina á aðgerðum

·fjölmiðlar stuðli að gagnrýnni og upplýstari umræðu um af hverju við erum ekki að standa okkur betur (Ísland er nr. 26 í innleiðingu á heimsmarkmiðum á eftir löndum eins og Hvíta Rússlandi á meðan hin Norðurlöndin tróna við toppinn[3])

·fleiri einstaklingar sýni sjálfbærni í verki næst þegar þeir fara í vinnuna, í skólann, á kjörstað, versli í matinn, kaupi bifreið, fjárfesti eða hendi rusli og svona mætti áfram telja

Það þarf kjark til að stíga út fyrir þægindarammann og gerast leiðtogi í sjálfbærni. Ert þú tilbúin(n) að taka þetta skref?

Höfundur er stjórnarmaður í Festu, miðstöð um sjálfbærni og samfélagsábyrgð

[1] https://www.un.org/press/en/2019/ga12131.doc.htm

[2] https://climate.nasa.gov/faq/17/do-scientists-agree-on-climate-change/

[3] https://dashboards.sdgindex.org/rankings



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×