Handbolti

Hver er nýjasti landsliðsmaður Íslands?

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Óskar Ólafsson gæti leikið sína fyrstu landsleiki í byrju næsta mánaðar.
Óskar Ólafsson gæti leikið sína fyrstu landsleiki í byrju næsta mánaðar. drammen

Óskar Ólafsson, leikmaður Drammen, er eini nýliðinn í íslenska handboltalandsliðinu sem mætir Litháen og Ísrael í undankeppni EM 2022 í byrjun næsta mánaðar.

Óskar er ekki ýkja þekktur hér á landi enda leikið allan sinn feril í Noregi og búið þar síðan hann var tveggja ára.

„Þetta kom svolítið á óvart. Ég verð að viðurkenna það en þetta er alveg frábært,“ sagði Óskar aðspurður um landsliðsvalið í samtali við Vísi í gær.

„Mig hefur alltaf langað að spila fyrir Ísland, það er ekki spurning. Ég hef búið í Noregi síðan ég var tveggja ára en lék með yngri landsliðum Íslands. En ég er orðinn 26 ára þannig að það er smá tími síðan ég var þar,“ sagði Óskar sem er fæddur árið 1994. Hann kannast vel við jafnaldra sinn, Sigvalda Guðjónsson, sem er einnig í landsliðinu og hefur verið undanfarin misseri.

„Ég var með Sigvalda og Janusi [Daða Smárasyni] í yngri landsliðunum. Sigvaldi spilaði líka fyrir Elverum í Noregi,“ sagði Óskar.

Lítur á sig sem Íslending

Þótt hann hafi búið í Noregi nánast alla sína tíð er hann bara með íslenskt ríkisfang og lítur á sig sem Íslending.

„Mér líður eins og Íslendingi og við tölum íslensku heima. Það hefur aldrei komið til greina að fá norskan ríkisborgararétt,“ sagði Óskar.

Hann er á sínu fimmta tímabili hjá Drammen en einn þekktasti handboltamaður Noregs, Kristian Kjelling, fékk hann þangað frá Follo 2016.

Nýtt tækifærið í sókninni vel

Óskar hefur aðallega verið þekktur sem varnarmaður en á þessu tímabili hefur hann fengið stærra hlutverk í sóknarleik Drammen. Hann hefur skorað 36 mörk í níu leikjum í norsku úrvalsdeildinni og er næstmarkahæsti leikmaður Drammen á eftir Sindre André Aho.

„Espen Lie Hansen, sem hefur leikið með norska landsliðinu, meiddist í byrjun tímabils og þá fékk ég tækifæri í sókninni og það hefur gengið mjög vel,“ sagði Óskar.

„Mér finnst mjög gaman að spila vörn. Það hefur verið mitt hlutverk og verið mjög fínt. En það er mjög gaman að fá tækifæri í sókninni.“

Eltingaleikurinn við Elverum

Drammen er í 3. sæti norsku deildarinnar með þrettán stig, einu stigi á eftir toppliði Elverum sem á leik til góða.

„Við höfum verið rétt á eftir Elverum öll árin mín í Drammen. Elverum hefur verið númer eitt og Arendal og Drammen þar rétt fyrir aftan,“ sagði Óskar. Hann segir að það hafi aldrei alvarlega komið til greina að spila á Íslandi, allavega ekki enn sem komið er.

„Ég æfði með Val þegar Ólafur Stefánsson var þjálfari þar en það voru bara nokkrar æfingar,“ sagði Óskar.

Hann hlakkar til að koma til móts við íslenska landsliðið og hefja landsliðsferilinn.

„Ég er mjög spenntur. Ég verð að viðurkenna það. Þetta verður mjög gaman,“ sagði Óskar að endingu.


Tengdar fréttir

HSÍ hefur sótt um undanþágu vegna leikjanna í nóvember

HSÍ hefur sótt um undanþágu svo landsleikir Íslands í undankeppni Evrópumótsins 2022 geti farið fram. Fyrr í dag voru allar íþróttir með snertingu bannaðar en Ísland mætir Litáen og Lettum í byrjun nóvembermánaðar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×