Innlent

Bein útsending: Netöryggi okkar allra

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ógnir vegna skipulagðrar glæpastarfsemi eru miklar á netinu.
Ógnir vegna skipulagðrar glæpastarfsemi eru miklar á netinu.

Netöryggi okkar allra er yfirskrift fundar samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í tilefni af evrópska netöryggismánuðinum í október. Fundurinn verður í beinni vefútsendingu og hefst klukkan 13. Er áætlað að hann standi í tvær klukkustundir.

Að loknu ávarpi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra verður fjallað um uppbyggingu og eflingu Netöryggissveitarinnar ásamt samræmandi hlutverki hennar í samræmi við ný lög um net- og upplýsingaöryggi sem tóku gildi 1. september.

Sérstakur gestur fundarins er Sir Rob Wainwright, meðeigandi Deloitte í Evrópu og fyrrverandi framkvæmdastjóri Europol, en hann mun fjalla um fjölbreyttar ógnir af völdum skipulagðrar glæpastarfsemi á Netinu.

Loks verða pallborðsumræður með sérfræðingum af ýmsum sviðum samfélagsins á sviði netöryggis og upplýsingatækni. Fjallað verður um ýmsar hliðar netöryggismála hérlendis og tækifæri til framfara.

Dagskrá:

13:00 Ávarp

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

13:15 Efling netöryggissveitarinnar

Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar

13:30 Trust in a hyper connected digitalized society

Sir Rob Wainwright, meðeigandi Deloitte í Evrópu og fyrrverandi framkvæmdastjóri Europol

14:00 Pallborðsumræður með þátttöku Sir Rob Wainwright, Hrafnkels og eftirtalinna:

Daði Gunnarsson, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu

Guðrún Valdís Jónsdóttir, öryggisráðgjafi hjá Syndis

Sigyn Jónsdóttir, forstöðumaður sérfræðiþjónustu hjá Men and Mice og stjórnarkona í Tækniþróunarsjóði

Vilhelm Gauti Bergsveinsson, yfirmaður netöryggisþjónustu Deloitte á Íslandi

Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×