Erlent

Bakslag í uppbyggingu flugvallar á Grænlandi

Kristján Már Unnarsson skrifar
Teikning af fyrirhugðum Qaqortoq-flugvelli á Suður-Grænlandi. Gert er ráð fyrir 1.500 metra langri flugbraut sem hægt verði að lengja í 1.800 metra.
Teikning af fyrirhugðum Qaqortoq-flugvelli á Suður-Grænlandi. Gert er ráð fyrir 1.500 metra langri flugbraut sem hægt verði að lengja í 1.800 metra. Teikning/Kalaallit Airports.

Flugvallafyrirtæki grænlensku landsstjórnarinnar, Kalaallit Airports, hefur frestað framkvæmdum við nýjan flugvöll við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Ástæðan sem gefin er upp í fréttatilkynningu er sú að tilboð sem bárust reyndust öll verulega yfir fjárhagsramma verksins. Íslenski verktakinn Ístak var meðal bjóðenda, sem valdir höfðu verið fyrirfram í forvali.

Gert er ráð fyrir glæsilegri flugstöðvarbyggingu, 4.300 fermetrar að stærð, sem einkum þjóni innanlandsflugi á Grænlandi en einnig takmörkuðu millilandaflugi.Teikning/Kalaallit Airports.

Tilboð voru opnuð í maí og stóð til að framkvæmdir hæfust í sumar en Qaqortoq-flugvöllur með 1.500 metra langri braut átti að vera tilbúinn í árslok 2023. Átti hann að verða þriðja stóra flugvallarverkefni Grænlendinga. Áður voru hafnar framkvæmdir við 2.200 metra flugbrautir við bæina Nuuk og Ilulissat og ganga þær samkvæmt áætlun.

Flugvellirnir í Nuuk og Ilulissat fá báðir 2.200 metra flugbraut en áformað er að í Qaqortoq verði 1.500 metra braut.Grafík/Hafsteinn Þórðarson.

Fréttir af Qaqortoq-útboðinu bárust þó ekki fyrr en langt var liðið á ágústmánuð. Flugvallafyrirtækið greindi jafnframt frá því að reynt hefði verið að brúa bilið með viðræðum við tvo lægstbjóðendur um lækkun kostnaðar og við Landsstjórnina um hækkun fjárveitingar en þær hefðu ekki borið tilætlaðan árangur.

Stærð flugstöðvarinnar er miðuð við að hún geti samtímis þjónað 100 brottfararfarþegum og 100 komufarþegum.Teikning/Kalaallit Airports.

Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks, staðfestir að Ístak hafi verið annar þessara lægstbjóðenda, sem rætt var við, en hinn hafi verið kanadískur verktaki. Karl segist hafa fengið misvísandi fréttir um framhaldið, annarsvegar að stefnt sé að nýju útboði á næsta ári en hins vegar að ætlunin sé að ræða frekar við verktakana tvo.

Niðurstaðan hefur valdið miklum vonbrigðum á Suður-Grænlandi en Qaqortoq-flugvelli er ætlað að leysa af Narsarsuaq sem aðalflugvöllur landshlutans. Áhrifamenn á Suður-Grænlandi, bæði stjórnmálamenn og forystumenn atvinnulífs, gagnrýna þá ákvörðun að slíta viðræðum við verktakana og saka ráðamenn í Nuuk um ranga forgangsröðun. Qaqortoq sé eini bær Grænlands sem virkilega vanti flugvöll, þar hafi menn beðið í 20 ár eftir flugvelli.

Flugvellinum er ætlað að þjóna stærsta bæ Suður Grænlands, Qaqortoq, og nágrannabyggðum. Í Qaqortoq, sem áður hét Julianehåb, búa um þrjúþúsund manns.Teikning/Kalaallit Airports

Nú þykir ljóst að verkið frestast að minnsta kosti um eitt ár og flugvöllurinn verði í fyrsta lagi tilbúinn árið 2024.

Stöð 2 fjallaði um Qaqortoq-flugvöll í byrjun árs og sýndi þá grafískt myndband af útliti hans í frétt sem sjá má hér:


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×