Fótbolti

Mourin­ho, Pochettino og Ellis kynna „taktíkina“ gegn kórónu­veirunni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mourinho í myndbandinu.
Mourinho í myndbandinu. vísir/skjáskot
Arsene Wenger, Mauricio Pochettino, Jose Mourinho og Jill Ellis eru á meðal þeirra sem eru í kynningarmyndbandi FIFA hvernig eigi að koma í veg fyrir kórónuveiruna.

FIFA gaf út kynningarmyndband í gær þar sem farið var yfir fimm atriði, hvernig eigi að koma í veg fyrir veiruna, en það var allt frá handþvotti og að hnerra eða hósta í olnbogann.

Það eru ekki bara Wenger, Pochettino, Mourinho og Ellis sem eru í myndbandinu því einnig eru þau Casey Stone og Aliou Cisse í myndbandinu. Það endar svo á Gianni Infantino, forseta FIFA, með þau skilaboð að við munum vinna þessa baráttu saman.

Myndbandið má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×