Handbolti

Rakel þjálfar Stjörnuna á næsta tímabili

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sigurjón og Rakel við undirritun samningsins.
Sigurjón og Rakel við undirritun samningsins. mynd/stjarnan

Rakel Dögg Bragadóttir mun þjálfa kvennalið Stjörnunnar í handbolta á næsta tímabili. Sigurjón Friðbjörn Björnsson verður aðstoðarþjálfari hennar. Þau taka við Stjörnunni af Sebastian Alexanderssyni sem hefur þjálfað liðið undanfarin tvö tímabil.

Rakel er núverandi aðstoðarþjálfari og leikmaður Stjörnunnar. Hún hefur leikið yfir 100 A-landsleiki og var um tíma landsliðsfyrirliði.

Hún hefur nokkrum sinnum verið aðstoðarþjálfari Stjörnunnar og þau Sigurjón hafa þjálfað yngri landslið Íslands, fyrst U-15 og svo U-17, undanfarin þrjú ár.

Sigurjón er núverandi þjálfari kvennaliðs Fjölnis. Hann þjálfaði áður kvennalið ÍR um tveggja ára skeið.

Stjarnan er í 3. sæti Olís-deildar kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×