Handbolti

„Margar okkar muna mjög vel eftir því“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Karen Helga Díönudóttir, fyrirliði Hauka, og Ásdís Sigurðardóttir, fyrirliði KA/Þórs, með bikarinn sem keppt er um.
Karen Helga Díönudóttir, fyrirliði Hauka, og Ásdís Sigurðardóttir, fyrirliði KA/Þórs, með bikarinn sem keppt er um. Mynd/HSÍ

Haukar og KA/Þór spila í dag upp á sæti í bikarúrslitaleiknum á laugardaginn þegar liðin mætast í fyrri undanúrslitaleik Coca Cola bikars kvenna í Laugardalshöllinni.

Karen Helga Díönudóttir, fyrirliði Hauka, og Ásdís Sigurðardóttir, fyrirliði KA/Þórs, mættu á kynningarfund vegna Coca Cola bikarsins fyrir helgina og HSÍ tók við þær viðtal og birti á síðu sinni.

„Við töpuðum naumlega fyrir Haukum í undanúrslitum Coca Cola bikarsins fyrir tveimur árum. Það var mjög sárt. Margar okkar muna mjög vel eftir því,“ sagði Ásdís Sigurðardóttir, fyrirliði KA/Þórs, í viðtali við HSÍ og vitnar þar til undanúrslitaleiks Hauka og KA/Þórs fyrir tveimur árum sem lauk með tveggja marka sigri Hauka, 23-21.

Þetta er í þriðja sinn sem KA/Þór er í undanúrslitum Coca Cola bikars kvenna. Árið 2009 náði liðið svo langt í keppninni og aftur níu árum síðar. Þess má einnig geta að Þór Akureyri lék til úrslita í bikarnum fyrir 40 árum gegn Fram.

„Það er annað að mætast í úrslitaleik þar sem allt er undir en í deildarleik. Þetta er annað svið með hærra spennustigi,“ sagði Karen Helga Díönudóttir, fyrirliði Hauka, í samtali við HSÍ. Karen Helga tekur nú þátt í sjötta sinn í undanúrslitum með Haukum, þar af hefur hún einu sinni leikið til úrslita, fyrir tveimur árum. Alls hafa Haukar átt lið í undanúrslitum kvenna í 17 skipti frá því að fyrst var leikið í bikarkeppninni í kvennaflokki árið 1976.



Karen Helga segir það hafa háð Haukaliðinu í vetur að mæta pressunni þegar mikið er undir. „Við erum í stanslausri vinnu við að bæta okkur á þessu sviði og læra betur inn á að vinna með spennustigið.“

„Við erum með góða blöndu af yngri og eldri leikmönnum og þeim yngri þykir eðlilegt að hafa náð alla leið í undanúrslitin í bikarnum sem gefur öllum sjálfstraust. Okkar stefna er að fara í úrslitaleikinn. Það væri alveg geggjað,“ sagði Ásdís ennfremur.

„Úrslitin geta ráðist á því hvort liðið kemur betur undirbúið til leiks og tilbúið í slaginn,“ sagði Karen Helga en Haukar og KA/Þór mættust í Olís-deildinni á laugardaginn og þá unnu Haukar, 27:22. Úrslit þess leiks hafa ekkert vægi þegar komið verður út í undanúrslitaslaginn á miðvikudaginn. „Mesta pressan er á Arna Stefáni Guðjónssyni þjálfara okkar að klippa upptöku af fyrri leiknum svo við getum dregið lærdóm af honum fyrir viðureignina á miðvikudaginn í undanúrslitum Coca Cola bikarsins,“ sagði Karen Helga hress og kát í þessu viðtali við HSÍ.

„Það er komið að því að við stigum skrefið og förum alla leið í úrslitaleikinn. Allir leikmenn eru í toppformi og hlakkar til,“ sagði Ásdís Sigurðardóttir, fyrirliði KA/Þórs.

Undanúrslitaleikur Hauka og KA/Þórs hefst klukkan 18.00 í dag í Laugardalshöllinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×