Johnson stokkar upp í ríkisstjórn sinni og fjármálaráðherrann segir af sér Kjartan Kjartansson skrifar 13. febrúar 2020 12:44 Sajid Javid sagði af sér sem fjármálaráðherra frekar en að verða við afarkostum Johnson. Vísir/EPA
Fjöldi ráðherra var rekinn í óvæntri uppstokkun Boris Johnson forsætisráðherra á bresku ríkisstjórninni í morgun. Sajid Javid sagði jafnframt af sér sem fjármálaráðherra eftir að Johnson gerði kröfu um að hann ræki alla ráðgjafa sína. Julian Smith, ráðherra málefna Norður-Írlands, Andrea Leadsom, viðskiptaráðherra, Esther McVey, húsnæðismálaráðherra, og Theresa Villiers, umhverfisráðherra, eru á meðal þeirra ráðherra og hátt settra embættismanna sem Johnson ruddi út úr ríkisstjórninni í morgun. Javid hafnaði kröfu Johnson um að hann léti alla ráðgjafa sína fara og réði í staðinn ráðgjafa forsætisráðuneytisins. Ráðherrann á að hafa svarað því til að enginn ráðherra með „sjálfsvirðingu“ gæti sætt sig við slíka afarkosti. Breska ríkisútvarpið BBC segir að afsögn Javid komi í kjölfar sögusagna um stirt samband hans við Dominic Cummings, aðalráðgjafa Johnson forsætisráðherra. Í stað Javid, sem átti að kynna fyrstu fjárlög sín eftir mánuð, kemur Rishi Sunak sem var áður aðstoðar húsnæðismálaráðherra fyrir rúmu hálfu ári. Forsætisráðuneytið hefur staðfest að aðrir áhrifamiklir ráðherrar eins og Dominic Raab, Michael Gove og Priti Patel séu ekki á förum.
Bretland Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira