Ýmir byrjaði á spennuleik í Þýskalandi | Oddur með 9 mörk Sindri Sverrisson skrifar 13. febrúar 2020 20:04 Ýmir Örn Gíslason er mættur í slaginn í Þýskalandi. mynd/stöð2sport
Ýmir Örn Gíslason þreytti í kvöld frumraun sína í þýsku 1. deildinni í handbolta. Oddur Gretarsson átti stórleik en það dugði skammt. Ýmir gekk í raðir Rhein-Neckar Löwen frá Val á dögunum og var í liðinu þegar það gerði 27-27 jafntefli við Wetzlar á útivelli í kvöld. Ýmir skoraði úr eina skoti sínu í leiknum og Alexander Petersson skoraði tvö en Viggó Kristjánsson komst ekki á blað fyrir heimamenn. Löwen, sem leikur undir stjórn Kristjáns Andréssonar, er í 6. sæti deildarinnar með 29 stig, fjórum stigum fyrir ofan Wetzlar og sjö stigum á eftir toppliði Kiel. Flensburg er tveimur stigum á eftir Kiel eftir sigur á Nordhorn í kvöld en Kiel á hins vegar leik til góða. Oddur Gretarsson skoraði úr öllum níu skotum sínum fyrir Balingen, þar af þrjú úr vítum, þegar liðið tapaði 32-27 fyrir Erlangen á útivelli. Balingen er aðeins þremur stigum frá fallsæti en Erlangen komst með sigrinum í örugga fjarlægð frá fallsvæðinu. Elvar Ásgeirsson var ekki á meðal markaskorara Stuttgart sem vann sterkan sigur gegn Melsungen á útivelli, 26-21. Stuttgart komst þar með upp fyrir Balingen á markatölu en er sömuleiðis þremur stigum frá fallsæti. Arnór Þór Gunnarsson skoraði eitt marka Bergischer sem tapaði 28-22 fyrir Göppingen á útivelli. Ragnar Jóhannsson var ekki á meðal markaskorara Bergischer sem er í 13. sæti, fimm stigum frá fallsæti.Úrslit kvöldsins: Flensburg - Nordhorn 29-27 Göppingen - Bergischer 28-22 Erlangen - Balingen 32-27 Wetzlar - Rhein-Neckar Löwen 27-27 Melsungen - Stuttgart 21-26
Þýski handboltinn Mest lesið Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti EM í dag: Slagsmál í Malmö og dónar í dinner Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Fleiri fréttir Danir svöruðu fyrir Portúgalstapið og unnu Evrópumeistarana Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason „Mig kitlar svakalega í puttana“ Hættu við að dæma víti og Norðmenn unnu Spánverja EM í dag: Slagsmál í Malmö og dónar í dinner Strákarnir hans Arons unnu risasigur Alfreð og hans menn með fullt hús stiga eftir hádramatík Óðinn á eitt flottasta mark EM Myndasyrpa: Allir kátir á æfingu í Malmö Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Segir Svía hafa efni á að tapa fyrir Íslandi Gísli Þorgeir sá fjórði stoðsendingahæsti á EM „Ég er bara Króati á morgun“ Alfreð þurfti að breyta plönum hratt fyrir stund hefndar „Nú vitum við allavega að Danir eru mannlegir“ Donni þarf líka að fara í aðgerð „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Haukakonur upp í þriðja sætið Strákarnir hans Dags fengu skell Elín Rósa var atkvæðamikil þegar Blomberg-Lippe fór á toppinn Liðið sem fylgdi Íslandi á HM náði ekki að vinna leik EM í dag: Liðsstyrkur og meiðsli í Malmö Elvar kemur inn fyrir Elvar Lærisveinar Dags spila bönnuðu lögin í klefanum Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Þarf að beisla Einar aðeins en líst vel á samstarfið Nefmæltur Einar „stórkostlegur“ eftir „ógeðslega“ daga í einangrun Sjá meira