Viðskipti innlent

Bein út­sending: Mennta­dagur at­vinnu­lífsins 2020

Atli Ísleifsson skrifar
Menntadagur atvinnulífsins er árlegur atburður.
Menntadagur atvinnulífsins er árlegur atburður.

Á Menntadegi atvinnulífsins 2020 verður fjallað um sköpun í íslensku atvinnulífi og menntakerfi út frá fjölmörgum sjónarhornum. Ráðstefnan fer fram í Norðurljósum í Hörpu og hefst klukkan 8.30 og stendur til 11.30. Hægt er að fylgjast með ráðstefnunni í spilaranum að neðan.

Í tilkynningu frá SA segir að Menntadagurinn sé árlegur viðburður og að honum standi Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Meðal þeirra sem taka þátt eru Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Guðni og Lilja munu um kl. 9.45 veita fyrirtækjum sem skara fram úr í fræðslu- og menntamálum starfsmanna Menntaverðlaun atvinnulífsins 2020.

Dagskrá viðburðarins, klukkan 8.30-10.

Ýtt úr vör Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Skapandi starfsumhverfi Halldóra Vífilsdóttir, arkitekt og verkefnastjóri Austurbakka hjá Landsbankanum

Hverjir eru skapandi? Birna Kristrún Halldórsdóttir, ráðgjafi og vottaður LEGO SERIOUS PLAY leiðbeinandi hjá Attentus

Leikreglur í skapandi umhverfi Dóra Jóhannsdóttir, leikkona, handritahöfundur og spunakona

Skapandi eða apandi? Áslaug Baldursdóttir, kennari, hönnuður, ritstjóri og margt fleira

Er fyrirtækjarekstur listform? Pétur Arason, frumkvöðull hjá Manino

Hönnunarhugsun í nýsköpun Ívar Þorsteinsson, leiðtogi viðskiptaþróunar, viðskiptatengsla og markaðsstarfs hjá Kolibri

Með hjartað á réttum stað! Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar

Hvað er sköpun? Markús Þór Andrésson, deildastjóri sýninga og miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur

Menntaverðlaun atvinnulífsins 2020 Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenda Menntaverðlaun atvinnulífsins.

10:00-10:30.

Kaffi og með því. Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna fjölbreytt nám og þjónustu á menntatorgi.

10:30-11:30

Málstofa þar sem verður kafað dýpra

Að vinna markvisst með sköpun í menntun og á vinnustaðnum

Camilla Uhre Fog, skólastjóri International Scool of  Billund, og fyrrum stjórnandi hjá Lego Foundation.

Lesblinda Sylvía Melsted, frumkvöðull og tónlistarkona, ásamt gestum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×