Mata gerði útslagið gegn Úlfunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mata skorar eina mark leiksins.
Mata skorar eina mark leiksins. vísir/getty

Manchester United er komið áfram í 4. umferð ensku bikarkeppninnar eftir 1-0 sigur á Wolves í endurteknum leik í kvöld. Fyrr í mánuðinum gerðu liðin markalaust jafntefli á Molineux.

Juan Mata skoraði eina mark leiksins í kvöld. Hann slapp þá inn fyrir vörn Úlfanna eftir sendingu Anthonys Martial og vippaði skemmtilega yfir John Ruddy.

United slapp með skrekkinn í fyrri hálfleik þegar mark var dæmt af Úlfunum eftir að Raúl Jiménez handlék boltann.

Wolves sló United út úr bikarkeppninni á síðasta tímabili en nú snerist dæmið við.

Í 4. umferðinni mætir United annað hvort Watford eða Tranmere Rovers.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira