Erlent

Vilja rannsaka hegðun sendiherrans frekar

Samúel Karl Ólason skrifar
Robert Wood Johnson, sendiherra Bandaríkjanna í Bretlandi.
Robert Wood Johnson, sendiherra Bandaríkjanna í Bretlandi. Getty/Hannah McKay

Robert Wood Johnson, sendiherra Bandaríkjanna í Bretlandi, hefur hagað sér með móðgandi hætti gagnvart starfsfólki sendiráðsins. Þetta kemur fram í skýrslu innri endurskoðenda Utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna sem segir þó að þörf sé að ítarlegri rannsókn á hegðun sendiherrans.

Í skýrslunni kemur fram að starfsandi í sendiráðinu hafi versnað í tíð sendiherrans.

Meðal móðgandi og óviðeigandi ummæla ráðherrans eru ummæli um kynþátt, litarhaft, kyn og trú starfsmanna sendiráðsins. Hann er einnig sagður hafa beitt starfsmenn miklum þrýstingi, sakað þau um að vinna gegn sér og hótað að reka fólk sem hefur fært honum svör sem hann hefur ekki verið sáttur við.

Johnson er auðjöfur og meðal annars meðeigandi í NFL-liðinu New York Jets. Hann hefur enga reynslu sem erindreki og var skipaður í stöðuna af Donald Trump, forseta, í ágúst 2017.

New York Times sagði frá því í síðasta mánuði að Johnson hefði rætt við ráðamenn í Skotlandi um að halda Opna breska meistaramótið á velli Trump í Turnberry. Beiðni um slíkt er sögð hafa borist frá Trump sjálfum og á aðstoðarsendiherra hans að hafa varað Johnson við því að verða við henni. Slíkt gæti verið lögbrot.

Johnson mun þó hafa fundist hann undir þrýstingi frá Hvíta húsinu og ræddi málið við David Mundell, innanríkisráðherra Skotlands.

Í kjölfarið sendi aðstoðarsendiherrann póst til Utanríkisráðuneytisins og sagði starfsmönnum þar hvað hefði gerst. Johnson rak aðstoðarsendiherrann svo skömmu seinna.

Í áðurnefndri skýrslu er haft eftir Johnson að hann biðjist afsökunar ef hann hefur óvitandi móðgað einhvern. Hann þvertekur þó fyrir að hafa komið fram við starfsmenn af vanvirðingu eða brotið gegn þeim á nokkurn hátt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×