Brugðust strax við ábendingum um rape.is Stefán Ó. Jónsson skrifar 7. ágúst 2020 12:00 Mörður Ingólfsson, framkvæmdastjóri 1984, við hljóðver X 977 í Skaftahlíð. vísir/frosti
Hin skammlífa vefslóð Rape.is skilar ekki lengur neinum niðurstöðum eftir að netverjar gerðu íslenskum stjórnvöldum viðvart. Vefslóðin vísaði á spjallborð þar sem fram fara umræður um kynferðisbrot, nauðganir og barnaníð eru vegsömuð og notendur deila myndum af börnum. Samkvæmt upplýsingum á vef ISNIC, fyrirtækisins sem sér um skráningu léna undir landsléninu .is, var rape.is skráð á þriðjudag. Vefurinn er hýstur hjá sænska fyrirtækinu PRQ sem í þessum geira flokkast til svokallaðra „skotheldra hýsingaraðila.“ Það eru hýsingarfyrirtæki sem hafa engin afskipti af því sem hýst er á vefþjónum þeirra og eru fyrir vikið vinsæl meðal tölvuþrjóta og annarra sem þurfa samastað fyrir ólöglegt athæfi sitt á netinu. Íslenska hýsingarfyrirtækið 1984.is veitti rape.is svokallaða nafnaþjónustu, eða DNS (e. Domain Name System). Mörður Ingólfsson, framkvæmdastjóri 1984, segir að þau hafi fengið ábendingu um hvað þrífst á vefnum í gær eða fyrradag - „og við hættum umsvifalaust að þjóna þessu léni,“ segir Mörður. „Það sem þarna fer fram er ósiðlegt, óeðlilegt og ólöglegt og því brugðumst við strax við.“ Spjallborðið mátti nálgast í gegnum vefslóðina þangað til í morgun.getty/Ignatiev Það sem 1984 gerði var að rjúfa tengslin milli lénsins rape.is og IP-tölu spjallborðsins, sem segja má að sé eins konar heimilisfang þess. Spjallborðið er því ennþá til en vefslóðin sendir notendur ekki lengur á áfangastað. Sé rape.is slegið inn í vafra kemur aðeins villumelding. Mörður segir að eftir að 1984 hafi borist ábending um spjallborðið hafi fyrirtækið safnað saman hinum ýmsu tæknilegu upplýsingum um síðuna og komið þeim til lögreglu. Vísir hefur óskað eftir upplýsingum frá netglæpadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um næstu skref. Aðspurður hvort að 1984 geti haft yfirsýn yfir öll þau lén sem fyrirtækið veitir nafnaþjónustu segir Mörður það erfitt. Fyrirtækið þjónusti rúmlega 30 þúsund lén og því ógjörningur fyrir átta starfsmenn 1984 að kveða upp dóm um innihald þeirra allra. „Viljum geta sofið á kvöldin“ Það sé þó grunnstefna fyrirtækisins að standa vörð um tjáninarfrelsi, ekki síst pólitíska umræðu hinna jaðarsettu. 1984 hýsi þannig fjölda vefsíða fólks sem Mörður segi að sé í raunverulegri hættu vegna skoðanna sinna, fólks sem mótmæli stjórnvöldum sem vilji taka það af lífi vegna gangrýni sinnar. Nafn fyrirtækisins ber þess einmitt merki, 1984 sé vísun í samnefnda bók George Orwell um hið allsráðandi ríki sem stýrir jafnvel hugsunum þegna sinna. Fyrir vikið hafi 1984 átt í margvíslegum átökum. Þau hafi þurft að verjast árásum hakkara sem vilja eyða síðum pólitískra andstæðinga og lögfræðinga sem vilja draga fyrirtækið til ábyrgðar fyrir pólitískt andóf notenda sinna. „En við erum að verjast þessu af hugsjón, við viljum gera gagn.“ Mörður segir hins vegar að 1984 gangi hins vegar ekki jafn langt í þessum efnum og hið fyrrnefnda sænska PRQ. Fyrir vikið geti fyrirtækið leyft sér að hætta að þjónusta ýmis vafasaöm lén, eins og í tilfelli rape.is „Við myndum t.d. aldrei hýsa hryðjuverkastarfsemi eða ólöglegt klámefni. Við myndum ekki heldur hýsa nýnasista, þó svo að þeir séu víða löglegir. Við viljum geta sofið á kvöldin,“ segir Mörður.
Tækni Netglæpir Netöryggi Lögreglumál Kynferðisofbeldi Mest lesið „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Atvinnulíf Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Viðskipti innlent Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Viðskipti innlent Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Viðskipti erlent Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Viðskipti innlent Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Viðskipti innlent „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Viðskipti innlent Tónabíó opnar á ný Viðskipti innlent Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Viðskipti innlent Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Tónabíó opnar á ný Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Sjá meira