Anelka um endalokin hjá Liverpool: „Þessi sena var harmleikur fyrir mig“ Anton Ingi Leifsson skrifar 7. ágúst 2020 12:30 Anelka fagnar marki í leik með Liverpool. vísir/getty
Fyrrum knattspyrnumaðurinn, Nicolas Anelka, hefur neitað því að hann hafi viljað yfirgefa Liverpool og segir að hann hafi viljað ganga skipta alfarið yfir til félagsins. Anelka var lánaður til félagsins síðari hluta tímabilsins 2001/2002 er Gerrard Houllier, landi hans, var stjóri enska liðsins. September, sama ár, eftir að Anelka fór frá félaginu sagði Houllier að hann hafi ekki viljað skrifa undir við Anelka og það hafi verið út af allt öðrum hlutum en fótbolta. Á dögunum kom út heimildarmynd um Anelka, Misunderstood, þar sem hann ræðir m.a. tímann hjá Liverpool. „Stuðningsmenn Liverpool halda að ég hafi ekki viljað vera áfram en þeir þurfa að vita að það var ekki þannig,“ sagði Anelka í myndinni. Nicolas Anelka opens up on rumours which followed 'tragic' Liverpool exithttps://t.co/QHHH1jiaSn— Mirror Football (@MirrorFootball) August 6, 2020 „Þessi sena var harmleikur fyrir mig. Þetta er félag sem ég hefði getað gert frábæra hluti hjá.“ Anelka kom til félagsins sem smá vandræðagemsi en hann gerði vel og hafði strax áhrif á liðið. Skoraði hann fimm mörk og lagði upp þrjú mörk og var kominn með marga stuðningsmenn félagsins á sitt band. Houllier var ekki sannfærður um Anelka og lét hann fara til þess að geta fengið annan vandræðagemsa, El Hadji Diouf, eftir frábæra frammistöðu hans með Senegal á HM. Það gekk heldur ekki upp en Diouf skoraði einungis þrjú mörk í yfir 50 leikjum. Hann var lánaður til Bolton og gekk svo endanlega í raðir Bolton þremur árum seinna, árið 2005.
Enski boltinn Mest lesið Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Guðni Valur Norðurlandameistari Sport Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Fótbolti Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Lokaumferðin í enska | Hvaða lið verður meistari? Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Sjá meira