Golf

Beygði af í viðtali eftir sigurinn á 3M Open: „Get ekki beðið eftir því að faðma son minn og konuna mína“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Það fór ekkert á milli mála hversu miklu sigurinn á 3M Open skipti Michael Thompson.
Það fór ekkert á milli mála hversu miklu sigurinn á 3M Open skipti Michael Thompson. getty/Nick Wosika

Michael Thompson var tilfinningaríkur eftir að hann vann 3M Open mótið í Minnesota í golfi í gær. Hann tileinkaði fjölskyldu sinni sigurinn.

„Ég er mjög leiður yfir því að konan og börnin séu ekki hér til að fagna með mér. Ég get ekki beðið eftir að hitta þau. Elskan, ég elska þig. Ég veit ekki hvað ég á að segja, þetta er svo spennandi,“ sagði Thompson og beygði af.

„Afsakið mig ... ég spilaði svo vel í dag og trúði á sjálfan mig. Ég gæti ekki beðið um neitt meira.“

Thompson lék lokahringinn í gær á fjórum höggum undir pari. Samtals var bandaríski kylfingurinn á nítján höggum undir pari og var tveimur höggum á undan landa sínum, Adam Long.

Thompson segir að sigurinn á 3M Open hafi gríðarlega mikla þýðingu fyrir sig. Hann hlakkar til að fagna sigrinum í faðmi fjölskyldunnar.

„Þetta skiptir öllu máli. Ég get ekki beðið eftir faðma son minn og fagna með honum, fá okkur bollakökur eða eitthvað. Gráta og faðma konuna mína. Við höfum lagt svo hart að okkur og hún hefur staðið þétt við bakið á mér,“ sagði Thompson.

„Þetta fær mig til að gráta aftur. Hún hætti aldrei að trúa á mig og það sem ég get. Og ég er svo þakklátur.“

Sigurinn á 3M Open var annar sigur Thompson á PGA-mótaröðinni. Hann hafði áður unnið The Honda Classic fyrir sjö árum.

Klippa: Tileiknaði fjölskyldu sinni sigurinn

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×