Íhaldsflokkurinn HDZ vann sigur í Króatíu Atli Ísleifsson skrifar 6. júlí 2020 07:48 Andrej Plenkovic hefur gegnt embætti forsætisráðherra Króatíu frá árinu 2016. Getty
Andrej Plenkovic, forsætisráðherra Króatíu, og íhaldsflokkur hans, HDZ, hafa fengið umboð til að mynda nýja ríkisstjórn eftir að flokkurinn vann sigur í þingkosningunum sem fram fóru í landinu í gær. HDZ hefur verið ráðandi afl í stjórnmálum landsins í þau tæplega þrjátíu ár sem liðin eru frá sjálfstæði. Þegar búið var að telja um 90 prósent atkvæða var HDZ með 68 þingsæti af því 151 sem eru á þinginu. Jafnaðarmannaflokkurinn SPD hlaut næstflest atkvæði og 42 þingsæti, en þar á eftir var hægriöfgaflokkurinn DPMS sem fær fimmtán þingsæti. Fréttaskýrendur segja HDZ nú í þægilegri stöðu þar sem þeir geta nú valið um samstarfsflokka og þurfa því ekki að treysta á stuðning flokka yst á hægrivængnum. Plenkovic og stjórn hans hefur verið hrósað vegna viðbragða við heimsfaraldrinum, en alls hafa um þrjú þúsund smit verið skráð í landinu og hafa um hundrað dauðsföll verið rakin til Covid-19. Í landinu búa 4,2 milljónir manna. Davor Bernardic, leiðtogi SPD, greindi frá því í gærkvöld að hann myndi segja af sér formennsku og óskaði hann jafnframt Plenkovic og HDZ til hamingju með sigurinn.
Króatía Mest lesið „Af hverju ertu svona í framan?“ Innlent „Algjörlega alveg út í hött“ Innlent Skipar Ísraelum að hætta að sprengja Erlent Umferðin færist inn á íbúðagötur Innlent Diddy í fimmtíu mánaða fangelsisvist Erlent Vann á öllum deildum leikskólans Innlent Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast Innlent Andar sem eru ekki hér en voru í myndinni þeir sveima og fylgjast með Innlent Rannsaka mögulega stunguárás Innlent Nýsestur á skrifstofunni þegar hann fékk bíl í flasið Innlent Fleiri fréttir Skipar Ísraelum að hætta að sprengja Hamasliðar tilbúnir að sleppa gíslum og láta völd af hendi Hótar helvíti á jörð samþykki Hamas ekki tillögurnar Vísa frá máli á hendur skipverjum sem voru taldir hafa slitið sæstrengi „Það vill enginn spila eftir reglum sem eru samdar annars staðar“ Rekja andlát dóttur að hluta til samsæriskenninga móður Fyrsta konan sem verður erkibiskupinn af Kantaraborg Diddy í fimmtíu mánaða fangelsisvist Einn hinna látnu skotinn af lögreglu og annar særður Finna mikla nálykt frá rústunum Bein útsending: Siglt áleiðis til Gasa Látinn fara eftir að hafa neitað Trump um sverð í eigu Eisenhower Segist breyttur maður og biðlar til dómarans Hamas liðar vilja ekki afvopnast Flugvellinum í München lokað vegna drónaumferðar Nafngreina árásarmanninn í Manchester Segist eiga í vopnuðum átökum við eiturlyfjasmyglara Árásin í Manchester skilgreind sem hryðjuverk Leiðtogafundur í Danmörku: „Rússar munu ekki stoppa fyrr en tilneyddir“ Tveir látnir og þrír alvarlega særðir eftir árás í Manchester Afganir fagna því að vera aftur komnir í samband við umheiminn Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Jane Goodall látin Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið „Dimmur dagur“ í sögu Slóvakíu Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju Höfuðpaur tælingarhóps dæmdur í þrjátíu og fimm ára fangelsi Sjá meira