Fótbolti

Victor fékk rautt, Sara ekki í hóp í síðasta leiknum og Sandra hélt sér uppi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Victor fær að líta rauða spjaldið.
Victor fær að líta rauða spjaldið. vísir/getty

Guðlaugur Victor Pálsson fékk að líta rauða spjaldið er Darmstadt vann 3-1 sigur á Stuttgart í síðustu umferð þýsku B-deildarinnar.

Victor fékk að líta fyrra gula spjaldið á 65. mínútu og mínútu síðar fékk hann að líta annað gult spjald og þar með rautt.

Serdar Dursun skoraði fyrra mark Darmstadt og lagði svo upp annað markið á 53. mínútu. Darmstadt bætti svo við þriðja markinu áður en yfir lauk, einum manni færri.

Darmstadt endaði í 5. sæti deildarinnar, þremur stigum frá umspilsæti um þýsku úrvalsdeildina.

Sara Björk Gunnarsdóttir var ekki í leikmannahópi Wolfsburg sem vann 5-0 sigur á Bayer Leverkusen í síðustu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í dag.

Sara Björk er að yfirgefa Wolfsburg um mánaðamótin og var ekki í leikmannahópnum en Sandra María Jessen lék með Leverkusen. Þrátt fyrir tapið hélt Leverkusen sér uppi, á markatölu.

Kristianstad steinlá fyrir Gautaborg, 5-1, í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar. Svava Rós Guðmundsdóttir lagði upp mark Kristianstad en Björn Sigurbjörnsson stýrði liðinu í veikinda fjarveru Elísabetar Gunnarsdóttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×