Körfubolti

Einn besti leik­maður Domin­os-deildarinnar aug­lýsti eftir ís­lenskri kærustu í beinni út­sendingu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Dominykas Milka var frábær hjá Keflavík í vetur.
Dominykas Milka var frábær hjá Keflavík í vetur. vísir/daníel

Dominykas Milka, einn besti leikmaður Dominos-deildarinnar á síðustu leiktíð, gerði sér lítið fyrir og auglýsti eftir íslenskri kærustu í beinni útsendingu í Sportinu í dag sem var á sínum stað á Stöð 2 Sport í gær.

Milka skrifaði undir nýjan samning við Keflavík í síðustu viku en hann fór algjörlega á kostum á tímabilinu. Hann var einn lykilmanna Keflavíkur sem var í 2. sæti Dominos-deildarinnar er hún var blásin af.

Hann heimsótti þá Henry Birgi Gunnarsson og Kjartan Atla Kjartansson í gær og ræddi þar um heima og geima en hann nýtti sér tækifærið og kom því á framfæri að hann væri einhleypur.

„Markmiðið mitt er að vinna alla titla með Keflavík. Við verðum að gera mun betur í bikarnum en við gerðum á þessu ári en ég elska stuðningsmennina og fólkið,“ sagði Milka sem tók svo óvænta átt.

„Ég kann vel við körfuboltann og gæti hugsað mér að stofna fjölskyldu hér ef ég finn réttu íslensku stelpuna. Svo stelpur, ég er á lausu!“ sagði Milka en allt innslagið skemmtilega má sjá hér að neðan.

Klippa: Sportið í kvöld - Milka auglýsir eftir kærustu

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×