Ölfusvatnið á Óskarsverðlaununum 27. febrúar 2008 06:00 Jón svalar þorsta stjarnanna Átappað vatn undir merki Icelandic Glacial stóð kvikmyndastjörnum til boða sem sóttu Óskarsverðlaunahátíðina um helgina. Markaðurinn/Samsett mynd „
Við unnum Óskarinn,“ segir Jón Ólafsson, stjórnarformaður Icelandic Water Holdings, sem selur átappað lindarvatn úr Ölfusinu víða um heim undir merkjum Icelandic Glacial. Vatnið lá frammi á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fór í Hollywood á sunnudagskvöld en gestum hátíðarinnar gafst áður en blásið var til uppskeruhátíðarinnar vestra kostur á að setja flöskur með vatninu úr Ölfusinu í gjafapoka ásamt annarri gjafavöru. Sérstaklega var vatnsins getið í fjölmiðlum víða um heim í gær og í fyrradag. Fjölmiðlar vitnuðu sérstaklega til leikstjórans Sergeis Bodrov frá Kasakstan, að hann hefði aldrei séð neitt þessu líkt. Bodrov var tilnefndur fyrir myndina „Mongol“ í flokki bestu erlendu mynda sem fátt tók heim annað en gjafavöruna. Jón er afar ánægður með kynningu vatnsins vestra enda stórt skref að komast inn fyrir dyr kvikmyndaheimsins. Þar er hann síður en svo ókunnur en Jón hefur frá Skífuárunum haldið vinfengi við Jim Gianopulos, nú forstjóra móðurfélags 20th Century Fox-kvikmyndaversins. Í ofanálag hefur hann margsinnis sótt heim kvikmyndahátíðina í Cannes – hefur átt þar hús um árabil – og auglýsti vatnið þar með eftirminnilegum hætti fyrir þremur árum. Jón segir veg Icelandic Glacial hafa vaxið mjög frá fyrstu dögum. Vörumerkið hafi styrkst mjög í sessi í Bandaríkjunum upp á síðkastið. Jafnvel ratað á hvíta tjaldið en flöskurnar verða í um fjörutíu kvikmyndum á árinu og í sjónvarpsþáttum á borð við Desperate Housewives. Íslenskir bíógestir geta nú þegar séð flöskur undir merkjum Icelandic Glacial í kvikmyndinni „27 Dresses“ sem er sýnd í bíóhúsum auk þess sem þeim mun bregða fyrir í nýjustu kvikmynd leikkonunnar Cameron Diaz, „What Happens in Vegas“, sem verður sýnd fljótlega. „Flaskan er nú þegar í „treilernum“. Það er stórt skref út af fyrir sig,“ segir Jón Ólafsson, hress í bragði með árangurinn. Hann verður heiðursgestur á Íslenska markaðsdegi ÍMARK á föstudag og mun þar fara yfir sögu Icelandic Glacial og átöppunarverksmiðjunnar í Ölfusinu.- jab
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira