Golf

Svona lítur alþjóðlega golftímabilið út núna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods fær ekki að verja Masterstitilinn sinn frá því í fyrra fyrr en í nóvember.
Tiger Woods fær ekki að verja Masterstitilinn sinn frá því í fyrra fyrr en í nóvember. EPA/MATTHEW CAVANAUGH

Golfheimurinn hefur þurft að endurraða tímabilinu sínu vegna útbreiðslu kórónuveirunnar og nú er komið á hreint hvernig golfárið mun líta út þegar allt fer af stað í júnímánuði.

Stærst frétt gærdagsins var vissulega sú að það yrði ekkert opna breska í fyrsta sinn síðan 1945 en í framhaldinu gáfu allir helstu þungavigtaraðilar í golfheiminum út sameiginlega yfirlýsingu um nýtt mótafyrirkomulag fyrir árið 2020.

Augusta National Golf Club, European Tour, LPGA, PGA of America, PGA Tour, The Royal and Ancient og USGA hafa komið sér saman um hvernig golftímabilið mun líta út eftir breytingar.

Mastersmótið átti að fara fram í apríl og vera fyrsta risamót ársins en verður nú það síðasta á árinu 2020 og fer fram 9. til 15. nóvember.

Opna bandaríska meistaramótið var fært frá júní fram til september og PGA meistaramótið sem átti að vera í maí fer fram í ágúst. Ryder bikarinn er hins vegar enn á sama tíma í september.

Hér fyrir neðan má sjá hvernig golftímabilið 2020 lítur út núna:

Alþjóða golftímabilið 2020:

Júní

  • 15-21: PGA Tour event
  • 19-21: LPGA's Walmart NW Arkansas Championship
  • 25-28: KPMG Women's PGA Championship

Júlí

  • 9-12: Marathon LPGA Classic
  • 13-19: PGA Tour event
  • 15-18: Dow Great Lakes Bay Invitational
  • 27.-2.águst: PGA Tour event
  • July 31-2.águst: 2ShopRite LPGA Classic

Ágúst

  • 3-9: PGA Championship
  • 6-9: LPGA's The Evian Championship
  • 10-16: Wyndham Championship
  • 13-16: Aberdeen Standard Investments Ladies Scottish Open
  • 17-23: The Northern Trust
  • 20-23: AIG Women's British Open
  • 24-30: BMW Championship
  • 27-30: LPGA's UL International Crown
  • 31-7.sept: Tour Championship

September

  • 3-6: CP Women's Open
  • 10-13: LPGA's ANA Inspiration
  • 14-20: U.S. Open
  • 17-20: LPGA's Cambia Portland Classic
  • 22-27: Ryder Cup
  • 24-27: LPGA's Kia Classic

Nóvember

  • 9-15: Masters Tournament



Fleiri fréttir

Sjá meira


×